Forsíða > Um Te & Kaffi

Peru Villa Rica

Þetta kaffi er ræktað í Villa Rica héraðinu við rætur Andes fjalla. Það er ræktað í skugga Inga trjáa og innan um fágæta fugla eins og páfagauka og ló... nánar

Rauðrunna Mango

Koffeinlaust rauðrunnate með mangóbitum, blómum og jurtum. Dásamlegur haustdrykkur, bæði heitur og kaldur. Innihald: rauðrunnate, mangóbitar, bragðefn... nánar


Um Fair Trade

UTZ

Rainforest Alliance

Skráning á póstlista.



Um Te & Kaffi

Te & Kaffi - Þekking og gæði í aldarfjórðung

Te & Kaffi var stofnað árið 1984 af Berglindi Guðbrandsdóttur og Sigmundi Dýrfjörð og varð fyrsta íslenska fyrirtækið til að sérhæfa sig í sölu og framleiðslu á fersku sælkerakaffi ásamt fersku tei í lausavigt. Te & Kaffi hefur alla tíð lagt sinn metnað í að flytja inn og framleiða hágæðate og kaffi. Það er helsta markmið fyrirtækisins bjóða viðskiptavinum sínum upp á framúrskarandi bolla, alltaf, allstaðar.

Kaffið spilar veigameiri þátt í starfssemi fyrirtækisins enda markaður fyrir það hér á landi mun stærri en temarkaðurinn. Með aukinni vitund almennings um hágæðakaffi hafa sóknartækifæri Te & Kaffi aukist til muna á síðustu árum. Einnig urðu ákveðin markaðsleg kaflaskil á starfssemi Te & Kaffi á 20 ára afmælisárinu, árið 2004, þegar nýtt útlit á fyrirtækinu og vöru þess var kynnt. Allar götur síðan hefur markviss hönnun verið notuð til að styrkja stöðu fyrirtækisins á markaði. Vörumerkið Te & Kaffi hefur verið mikið kynnt undanfarin fjögur ár og er í dag orðið vel þekkt.

Rekstur fyrirtækisins er mjög fjölbreyttur og unnið er að sölu og dreifingu á öllum mögulegum mörkuðum. Hjarta fyrirtækisins er kaffibrennslan á Stapahrauni í Hafnarfirði, sem er í örum vexti, og þrjár sérverslanir undir merkjum Te & Kaffi sem eru staðsettar á Laugavegi 27, Kringlu og Smáralind. Einnig rekur fyrirtækið fjögur kaffihús; Eymundsson Austurstræti, Eymundsson Skólavörðustíg, Hugmyndahúsi Háskólanna og Eymundsson Akureyri.

Strangt gæðaeftirlit hjá fyrirtækinu á öllu vinnsluferli kaffibaunanna tryggja gæði sem kaffiunnendur á Íslandi geta treyst. Brennsla, pökkun og geymsluþol kaffisins eru mikilvægir þættir til þess að það bragðist vel og haldi ferskleika sínum alla leið til neytandans. Hjá fyrirtækinu er leitast við að velja bestu kaffitegundir sem völ er á og eru þær smakkaðar af okkar þaulvönu kaffisérfræðingum til þess að tryggja gæði og gott bragð. Árni Ragnarsson, brennslumeistari Te & Kaffi, varð í öðru sæti á heimsmeistaramóti í kaffismökkun á síðasta ári og skiptir það gríðarlegu miklu máli að hafa slíkan mann innan raða fyrirtækis sem hugsar um að bjóða upp á bestu kaffitegundir heimsins hverju sinni.

Með nýrri tækni við ristun aukast gæði brennslunnar enn frekar þar sem hægt er að stjórna brennslunni á mismunandi tegundum kaffibauna af mjög mikilli nákvæmni og tryggja jafna og stöðuga brennslu, ásamt því að draga enn betur fram sérkenni og keim hverrar kaffitegundar. Til að fullkomna ferskleikan er öllu kaffinu frá Te & kaffi pakkað strax eftir ristun í umbúðir með einstreymisventli sem tryggir ferskleikann.

Ásamt þessari lykil starfssemi rekur Te & Kaffi heildsölu á kaffi, tei og ýmsum tengdum vörum. Sókn fyrirtækisins inn á hinn almenna matvörumarkað hófst fyrir alvöru árið 2004 og í dag hefur fyrirtækið fest sig í sessi með tvær vörulínur í kaffiflokk allra helstu matvöruverslana landsins. Eftirspurn eftir vörum og þjónustu Te & Kaffi á hótel og veitingamarkaðinn á sér lengri sögu. Veitingamenn hafa um langt árabil getað stólað á þekkingu sérfræðinga Te & Kaffi og umsvif fyrirtækisins á þeim markaði hefur alla tíð stjórnast af eftirspurn fagaðila í veitingabransanum sem þekkja gott hráefni og vilja góða þjónustu.

Fréttabréf Te og Kaffi

Hæg ristun - Slow Roast

Til eru mismunandi aðferðir við að rista baunir. Í stærri verksmiðjum þar sem framleiðslan er gríðarleg og kannski ekki lagt svo mikið upp úr gæðu... nánar

Hvar drekkur þú mest kaffi?