Brazilía er stærsta kaffiframleiðslu land í heimi. Þar er að finna alskyns afbrigði af kaffi. Brazilíu kaffið er einkum þekkt fyrir lágt sýrustig og silkimjúkt bragð í munni.
Sul de Minas er stærsta kaffiræktunarsvæði Brazilíu. Kaffið þaðan er talið það besta frá Brazilíu. Miðað við flest lönd í Mið Ameríku þá er Brazilíu kaffið ræktað lágt niðri eða allt að 1300 m hæð, það útskýrir afhverju sýrustigið er svona lágt í Brazilíukaffinu.
Kaffið er ljóstristað og hefur lágt sýrustig. Kaffið hefur meðalfyllingu og er mjög milt á bragðið og er alveg flauelsmjúkt í munni.