Peru Villa Rica

Þetta kaffi er ræktað í Villa Rica héraðinu við rætur Andes fjalla. Það er ræktað í skugga Inga trjáa og innan um fágæta fugla eins og páfagauka og ló... nánar

Rauðrunna Mango

Koffeinlaust rauðrunnate með mangóbitum, blómum og jurtum. Dásamlegur haustdrykkur, bæði heitur og kaldur. Innihald: rauðrunnate, mangóbitar, bragðefn... nánar


Um Fair Trade

UTZ

Rainforest Alliance

Skráning á póstlista.



El Salvador San Antonio Rainforest

Kaffi var fyrst ræktað í El Salvador um miðja nítjándu öldina en þangað barst það frá Kúbu. Einkenni kaffis frá El Salvador er mýkt, gott jafnvægi, meðalfylling, skörp sýrni og keimur af sætleika. Hæsti gæðaflokkurinn kallast „Strictly High Grown“ sem má kalla háfjallakaffi en það er ræktað í allt að 1500 metra hæð. Þessi kaffitegund fellur í þann flokk enda er hún ræktuð í Alotepec fjallgarðinum í El Salvador og henni er gefin góður tími til að þroskast áður en berin eru týnd.

Brennslustig **** Sýrni ***

Bragðfylling *** Jafnvægi ****

San Antonio samtökin í El Salvador hafa allt frá árinu 1972 ræktað sjálfbært hágæðakaffi. Samtökin samanstanda af 926 ræktendum, þar af eru 35% þeirra kvenkyns. Þessir ræktendur eiga rúmlega 1500 búgarða, sem eru reknir sjálfstætt. Að auki eiga samtökin fjóra búgarða sem eru með Rainforest vottun. Allt fé sem kemur inn af sölu á kaffinu frá þessum fjórum búgörðum fer í félagslega uppbyggingu; skóla, íþróttastarf, endurbætur á húsnæði og svo framvegis.

Sjálfbært kaffi gefur ræktendum aukið gildi umfram annað kaffi. Hvort sem það er Fair Trade, lífrænt ræktað kaffi eða Rainforest Alliance þá er það að finna hjá San Antonio samtökunum. Þetta kaffi tryggir ræktendum sem hafa fjárfest í menntun, félagslegri uppbyggingu og náttúruverndar hærri greiðslur. Sjálfbært kaffi er góð leið til að tryggja lifibrauð samtaka sem leggja áherslu á verndun náttúrunnar og efnahagslegrar sjálfbærni á ræktunarsvæðum kaffisins víðsvegar í Mið-Ameríku og fleiri stöðum í heiminum. Þessi sjálfbærni skapar öllum þeim sem koma að kaffiræktuninni betri lífsskilyrði.

Fréttabréf Te og Kaffi

Hæg ristun - Slow Roast

Til eru mismunandi aðferðir við að rista baunir. Í stærri verksmiðjum þar sem framleiðslan er gríðarleg og kannski ekki lagt svo mikið upp úr gæðu... nánar

Hvar drekkur þú mest kaffi?