Te & Kaffi hefur verið brautryðjandi í kaffiframleiðslu Íslandi allt frá stofnun fyrirtækisins. Te & Kaffi var stofnað árið 1984 og varð fyrsta íslenska fyrirtækið til að sérhæfa sig í sölu og framleiðslu á fersku sælkerakaffi ásamt fersku tei í lausavigt. Fyrirtækið hefur alla tíð lagt sinn metnað í að flytja inn og framleiða hágæða kaffi og verið í fararbroddi við að auka vitund Íslendinga um gæðakaffi.
Hægt er að fara margar leiðir með það að sjónarmiði að láta gott af sér leiða um leið og verslað er kaffi á heimsmarkaði. Te & Kaffi hefur ávallt haft það að leiðarljósi hvort heldur fyrirtækið verslar beint frá bónda eða verslar kaffi frá bændum sem tengjast samtökum sem hjálpa þeim að auka gæði framleiðslu sinnar og gera betur við starfsmenn og umhverfi þeirra, sem þeir annars gætu ekki eða ættu erfiðara með sem einyrkjar.
Fairtrade er ein af þeim leiðum sem hægt er að fara og er Te & Kaffi stolt af því að hafa lagt í þá vinnu að vera nú eini kaffiframleiðandinn á Íslandi sem getur boðið Íslendingum upp á Fairtrade vottað kaffi.
Kjör kaffibænda eru slæmHundruð milljóna karla og kvenna í þróunarlöndum rækta kaffibaunir. Því miður eru kjör þessa fólks oft slæm, vinnutíminn langur, laun lág, barnaþrælkun algeng, starfsumhverfi hættulegt og hvorki starfsöryggi né launatrygging.
Við búum í heimi þar sem stórfyrirtæki nýta oft stöðu sína til að kaupa hráefni sem ódýrast frá framleiðendum – framleiðendum sem eiga oft engan annan kost en að selja á því verði sem fyrirtækin bjóða. Það verð getur jafnvel verið undir framleiðslukostnaði. Í slíkri samkeppni má sín lítils kaffibóndi í Kólumbíu, Kenýa eða Indónesíu, sem með uppskerunni sér fyrir fjölskyldu sinni. Aðgangur hans að markaðnum verður aðeins óbeinn og lifibrauðið stopul uppskera sem er háð síbreytilegu heimsmarkaðsverði. Ef uppskeran bregst eða markaðsverð lækkar þarf að lifa á sparifé og um leið að koma af stað næstu uppskeru. En fátækir bændur hafa ekkert sparifé. Ef illa árar, í veðri eða á mörkuðum, hrynur tilveran.
Sanngjörn viðskiptiFairtrade stendur fyrir sanngjörn viðskipti. Með Fairtrade er unnið að sjálfbærri þróun fyrir fátæka framleiðendur í þróunarlöndum. Sanngjörn viðskipti hjálpa bændum og framleiðendum í þróunarlöndum til að fá aðgang og afkastagetu til þess að vera í samkeppni á alþjóðlegum mörkuðum og gerir þeim kleift að sjá um sig og reka framleiðslufyrirtæki sín án þess að verða háðir erlendri hjálparstarfssemi. Með Fairtrade borgar neytandinn það verð sem það kostar að framleiða og senda vöru í verslun án þess að hann í leiðinni, óafvitandi, notfæri sér fátækt og vanmátt framleiðandans og haldi honum í viðjum fátæktar.
Með Fairtrade merkingu á vörum er verið að senda skýr skilaboð þess efnis að varan sé framleidd á ásættanlegan hátt, þær manneskjur sem framleiða vöruna hafi viðunandi lífskjör.
Fairtrade vottað kaffi í verslunum Te & KaffiNú hefur Te & Kaffi hafið framleiðslu á Fairtrade vottuðu kaffi sem nú er fáanlegt í öllum fjórum sérverslunum fyrirtækisins sem staðsettar eru á Laugavegi 27, Smáralind, Suðurveri og Kringlunni. Fairtrade vottað kaffi er fáanlegt í þremur tegundum; Espressoblöndu, Colombia Brazil og lífrænu Mandheling frá Sumatra í Indónesíu. Með því að kaupa Fairtrade vottað kaffi taka viðskiptavinir þátt í að hjálpa fólki sem fær ómetanlegt tækifæri til að læra að byggja upp mikilvægt fyrirtæki sem hlúir að samfélagi sínu og starfsmönnum og um leið gefur aukna möguleika á að bjóða aðeins hágæða framleiðslu.
____________________________________
Fyrir þá sem vilja frekari upplýsingar um þetta verkefni þá skal hafa samband við Guðmund Halldórsson, sölu- og verkefnisstjóra Te & Kaffi, í síma 555 1910 eða
gudmundur@teogkaffi.is