Forsíða > Fréttir

Sul de Minas

Brazilía er stærsta kaffiframleiðslu land í heimi. Þar er að finna alskyns afbrigði af kaffi. Brazilíu kaffið er einkum þekkt fyrir lágt sýrustig ... nánar

Sencha Mango

Mjúkt grænt Sencha te frá Japan, ríkulega blandað með sólblómum og mango. Dásamlega sumarlegt! nánar


Um Fair Trade

UTZ

Rainforest Alliance

Skráning á póstlista.



Bleika slaufan

Skrifað 1.10.2009

 


Sala á bleiku slaufunni, árlegt söfnunarátak Krabbameinsfélags Íslands, hefst formlega í dag 1. október 2009 og erum við hjá Te & Kaffi stoltir þátttakendur í því verkefni. Í ár er slaufan sérhönnuð af Sif Jakobs, sem er þekktur gullsmiður og skartgripahönnuður, og hefur félagið sett sér það markmið að selja 45 þúsund eintök af bleiku slaufunni fram til 15. október.

Allur ágóði af sölu á bleiku slaufunni fer að þessu sinni til leitarstarfs Krabbameinsfélags Íslands. Tíu ár eru frá því að árveknisátaki um brjóstakrabbamein var hleypt af stokkunum hérlendis með sölu á bleiku slaufunni og hefur það vaxið og dafnað með hverju árinu sem líður.

Bleika slaufan kostar 1000 kr og fæst í öllum sérverslunum og kaffihúsum Te & Kaffi. Allur ágóði rennur beint til Krabbameinsfélagsins.

Sjá frétt á heimasíðu Krabbameinsfélagsins
hérna .

 

Fréttabréf Te og Kaffi

Hæg ristun - Slow Roast

Til eru mismunandi aðferðir við að rista baunir. Í stærri verksmiðjum þar sem framleiðslan er gríðarleg og kannski ekki lagt svo mikið upp úr gæðu... nánar

Hvar drekkur þú mest kaffi?