Nú er Hátíðarkaffið okkar komið í verslanir. Í Hátíðarkaffinu eru sérvaldar úrvalskaffibaunir, af kaffimeisturum okkar, þar sem haft er að leiðarljósi ákveðið bragð.. Kaffibolli sem á vel við núna með kökunum og súkkulaðinu, eða að njóta einfaldlega þeirra dásamlegu bragðgæða sem hver bolli hefur.
Kaffið er ristað þannig að reynt er að ná sem best fram þeim náttúrulegu bragðsérkennum sem sérhver kaffitegund hefur að gefa. Verðlaunakaffi ( Cup of Excellent ) frá Guatemala prýðir þessa frábæru blöndu ásamt bestu fáanlegum kaffi tegundum frá nokkrum af helstu ræktunarsvæðum heimsins.
Mikil fylling sýtrus- og sætir ávextir njóta sín vel og í góðu jafnvægi í þessari velheppnuðu kaffiblöndu, sem kaffimeistarar okkar hafa legið yfir og eru afar stoltir af.
Allir sannir kaffiunnendur ættu ekki að láta Hátíðarkaffið okkar fram hjá sér fara þetta árið frekar en árin áður. Takið þátt og njótið vel.