Forsíða > Fréttir

Sul de Minas

Brazilía er stærsta kaffiframleiðslu land í heimi. Þar er að finna alskyns afbrigði af kaffi. Brazilíu kaffið er einkum þekkt fyrir lágt sýrustig ... nánar

Sencha Mango

Mjúkt grænt Sencha te frá Japan, ríkulega blandað með sólblómum og mango. Dásamlega sumarlegt! nánar


Um Fair Trade

UTZ

Rainforest Alliance

Skráning á póstlista.



Dagur rauða nefsins

Skrifað 26.11.2009


Þann 4. desember næstkomandi tekur fjöldi listamanna höndum saman með Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) og standa fyrir Degi rauða nefsins. Um kvöldið verður söfnunarþáttur í opinni dagskrá Stöðvar 2 þar sem grínistar láta ljós sitt skína í þeim tilgangi að safna fé fyrir bágstödd börn um allan heim.


Dagur rauða nefsins var fyrst haldinn hátíðlegur hérlendis fyrir þremur árum og var árangurinn framar vonum. Upprunalega er hugmyndin runnin undan rifjum bresku góðgerðarsamtakanna Comic Relief, sem voru stofnuð árið 1985. Þar í landi er dagurinn nú haldinn hátíðlegur annað hvert ár sem Red Nose Day og hefur fest sig rækilega í sessi. Allir sem rauðu nefi geta valdið setja upp nef í tilefni dagsins og er auk þess mikið lagt upp úr gríni og galsa á vinnustöðum.

Rauðu trúðanefin sem seld eru á 800 kr. til styrktar verkefnum UNICEF koma í verslanir Te & kaffi í dag, 26. nóvember, og eru allir hvattir til að kaupa nef og gleðja þar með vini og vandamenn um leið og þeir veita bágstöddum börnum stuðning.

Nefin er hægt að nálgast í sérverslunum okkar á Laugarvegi 27, Kringlunni og Smáralind.

Nánari upplýsingar um dag rauða nefsins eru hér á heimasíðu Unicef.

Fréttabréf Te og Kaffi

Hæg ristun - Slow Roast

Til eru mismunandi aðferðir við að rista baunir. Í stærri verksmiðjum þar sem framleiðslan er gríðarleg og kannski ekki lagt svo mikið upp úr gæðu... nánar

Hvar drekkur þú mest kaffi?