
Te & Kaffi hefur verið brautryðjandi í kaffiframleiðslu Íslandi allt frá stofnun fyrirtækisins 1984. Fyrirtækið hefur alla tíð lagt sinn metnað í að flytja inn og framleiða hágæða kaffi og verið í fararbroddi við að auka vitund Íslendinga um gæðakaffi.
Margar leiðir
Hægt er að fara margar leiðir með það að sjónarmiði að láta gott af sér leiða um leið og verslað er kaffi á heimsmarkaði. Te & Kaffi hefur ávallt haft það að leiðarljósi hvort heldur fyrirtækið verslar beint frá bónda eða verslar kaffi frá bændum sem tengjast samtökum sem hjálpa þeim að auka gæði framleiðslu sinnar. Fairtrade er ein af þeim leiðum sem hægt er að fara og er Te & Kaffi stolt af því að hafa lagt í þá vinnu að vera nú eini kaffiframleiðandinn á Íslandi sem getur boðið Íslendingum upp á Fairtrade vottað kaffi.
Sanngjörn viðskipti
Fairtrade stendur fyrir sanngjörn viðskipti. Með Fairtrade er unnið að sjálfbærri þróun fyrir fátæka ræktendur í þróunarlöndum. Sanngjörn viðskipti hjálpa bændum og ræktendum í þróunarlöndum til að fá aðgang og afkastagetu til þess að vera í samkeppni á alþjóðlegum mörkuðum og gerir þeim kleift að sjá um sig og ræktun sína án þess að verða háðir erlendri hjálparstarfssemi. Með Fairtrade borgar neytandinn það verð sem það kostar að framleiða og senda vöru í verslun án þess að hann í leiðinni, óafvitandi, notfæri sér fátækt og vanmátt framleiðandans og haldi honum í viðjum fátæktar.
Með Fairtrade merkingu á vörum er verið að senda skýr skilaboð þess efnis að varan sé framleidd á ásættanlegan hátt, þær manneskjur sem framleiða vöruna hafi viðunandi lífskjör.
Sumatra Mandheling
Í sérverslunum Te & kaffi fæst frábært Sumatra Mandheling kaffi sem er með Fairtrade vottun og er lífrænt ræktað og fæst þessi sama tegund líka í verslunum Hagkaupa og í Fjarðarkaup.