Te & Kaffi býður núna takmarkað upplag af Cup of Excellence kaffinu Finca de Dios, sem er búgarður í fjallendi Fraijanes í Guatemala. Fyrir nærri 40 árum hófst kaffiræktun á þessu svæði af miklum krafti og metnaði þegar eigendurnir juku til muna áherslu á kaffiræktun, sem hafði verið aukabúgrein fram að þeim tíma. Allt landsvæði búgarðsins, fyrir utan verndað skóglendi, var lagt undir kaffiræktun. Allar götur síðan hefur verið unnið að mikilli framþróun ræktunar. Engu að síður er búgarðurinn tiltölulega lítill og mikil áhersla á gæðaræktun. Uppskerutíminn er frá desember fram í febrúar ár hvert.
Finca de Dios kaffið er algjörlega einstakt og er eitt það allra besta frá Guatemala. Það hefur góða fyllingu, líflega sýrni, léttkryddað, með dásamlegan ilm og hefur fullkomið jafnvægi.
Baunagjöf 1-5
Ristun: *** Fylling: ****
Sýrni: *** Jafnvægi: *****
Finca de Dios er Cup of Excellence verðlaunakaffi sem eru virtustu verðlaunin sem veitt eru fyrir hágæða kaffi. Verðlaunin eru veitt í árlegri keppni keppni þar sem besta kaffitegund þeirra landa sem eru aðilar að verkefninu ár er valin. Cup of Excellence tegundin er valin af dómnefnd sem samanstendur af bestu kaffismökkurum sem völ er á og er hver tegund smökkuð að minnsta kosti fimm sinnum í hverri keppni. Þær tegundir sem skora hátt í hverri smökkun komast áfram í keppninni. Sigurvegarinn fær titilinn Cup of Excellence og er uppskeran í framhaldinu seld hæstbjóðanda í uppboði sem fer fram á internetinu.
Te & Kaffi tryggði sér Guatemala Finca de Dios kaffi á uppboði og getur boðið viðskiptavinum sínum takmarkað magn til sölu. Aðeins eru 34 kíló til sölu og fyrstu kemur fyrstur fær.
Verðið fyrir 250 gr af þessu fágæta Cup of Excellence kaffi kostar 1695 krónur og er það einungis selt í sérverslunum Te & Kaffi; Kringlu, Smáralind og Laugavegi 27.
Umfjöllun um Finca de Dios er hérna.
Þeir sem vilja hinsvegar kynna sér Cup of Excellence verkefnið er bent á þennan hlekk.