Forsíða > Fréttir

Peru Villa Rica

Þetta kaffi er ræktað í Villa Rica héraðinu við rætur Andes fjalla. Það er ræktað í skugga Inga trjáa og innan um fágæta fugla eins og páfagauka og ló... nánar

Rauðrunna Mango

Koffeinlaust rauðrunnate með mangóbitum, blómum og jurtum. Dásamlegur haustdrykkur, bæði heitur og kaldur. Innihald: rauðrunnate, mangóbitar, bragðefn... nánar


Um Fair Trade

UTZ

Rainforest Alliance

Skráning á póstlista.



Einvígi í mjólkurlist

Skrifað 19.3.2010


Kaffibarþjónafélag Íslands heldur einvígi í mjólkurlist núna laugardaginn 20.mars milli klukkan 14.00-17.00.

Einvígi í Mjólkurlist, virkar þannig í stuttu máli að tveir "kaffibarþjónar" koma sér fyrir sitthvoru megin við kaffivélina. Skjóta espresso og flóa mjólk. Næst hella þeir af bestu list og getu í bollann og reyna að gera flottasta munstur sem þeir geta. Nokkrir úr sal eru svo fengnir til að velja hvort mynstrið er fallegra og kemst þá vinningshafinn áfram í næsta riðil. Þannig gengur þetta koll af kolli þar til einn stendur eftir sem sigurvegari.

Þetta er opið öllum og þarf maður ekki að vera að vinna við að laga kaffi, ef þú heldur að þú eigir séns komdu og taktu þátt.

500.kr skráningargjald það þýðir 500 á hvern sem keppir, frítt er inn í húsið og auðvitað mega allir fylgjast með.

Á sama tíma verður PopUp hönnunar markaður í húsinu svo engum ætti að leiðast.

Fréttabréf Te og Kaffi

Hæg ristun - Slow Roast

Til eru mismunandi aðferðir við að rista baunir. Í stærri verksmiðjum þar sem framleiðslan er gríðarleg og kannski ekki lagt svo mikið upp úr gæðu... nánar

Hvar drekkur þú mest kaffi?