Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, veitti fyrir helgi viðtöku rúmlega 1,4 milljónum króna frá Sigmundi Dýrfjörð, eiganda og framkvæmdastjóra Te & kaffi. Þessi upphæð bætist við rúmar fjórar milljónir sem þegar hafa safnast í sameiginlegu fjáröflunarverkefni UNICEF og Te & kaffi þar sem fjölda íslenskra fyrirtækja er boðið að kaupa gæðakaffi og rennur hluti af andvirði sölunnar til verkefna Barnahjálparinnar.
„Ég vil þakka öllum þeim fyrirtækjum sem lögðu átakinu lið með því að kaupa kaffi og styrkja um leið gott málefni,“ sagði Stefán við þetta tilefni. „UNICEF treystir eingöngu á frjáls framlög og því skiptir hver gjöf máli.” Þá þakkaði hann Te & kaffi fyrir frábæra samvinnu.
Í ljósi góðs árangurs munu UNICEF og Te & kaffi endurtaka verkefnið nú í haust. Þá hefur viðskiptavinum kaffihúsa Te & kaffi um langt skeið staðið til boða að styrkja við starf Barnahjálparinnar með því að kaupa styrktarspjöld að andvirði 250 og 500 króna. Það vita ekki allir að fyrir slíkar fjárhæðir er hægt að lyfta grettistaki í málefnum bágstaddra barna. Fyrir 500 krónur má t.d. kaupa bóluefni gegn mislingum handa 24 börnum eða stílabækur handa 13 börnum. Alls hafa viðskiptavinir gefið um 250.000 krónur með þessum hætti.