Í Kaupmannahöfn dagana 19.-22. júní verður haldið heimsmeistaramót í ýmsum kaffikeppnum á vegum Speciality Coffee Association of Europe. Te & Kaffi á nokkra fulltrúa í þeirri keppni. Árni Ragnarsson tvöfaldur Íslandsmeistari í kaffismökkun verður fulltrúi Íslands á mótinu og Jónína Tryggvadóttir keppir í mjólkurlist. Ásamt þeim tveimur er Íslandsmeistari kaffibarþjóna, Pálmar Þór Hlöðversson, á fullu að undirbúa sitt atriði á mótinu. Pálmar hefur starfað hjá Te & Kaffi síðan í febrúar 2007 og hafði aldrei snert espressovél fyrr en hann hóf störf hjá fyrirtækinu. Pálmar gaf sér smá tíma frá ströngum æfingum og námskeiðahaldi til að spjalla um heimsmeistaramótið og margt fleira.

Hvernig hefurðu það í dag Pálmar?
Ég hef það fínt, þakka þér fyrir.
Hvað var það við Te & Kaffi sem vakti áhuga þinn?
Það gerðist að vísu fyrir slysni, ef svo má segja. Ég og vinkona mín, sem vinnur hjá Te & Kaffi líka, vorum að vinna á sama stað áður. Þegar hún réð sig til Te & Kaffi um jólin 2006 og lét vel af, ákvað ég að slá til og sjá hvort ekki væri laus staða fyrir mig líka. Svo það var í raun vinkona mín sem vakti áhuga minn. Í dag hef ég hins vegar óþrjótandi áhuga á kaffi og öllu sem viðkemur því og fylgir teið fast á hæla kaffisins.
Hvað er uppáhalds kaffidrykkurinn þinn?
Ég get ekki sagst eiga uppáhaldskaffidrykk, það eru ótrúlega margir þættir sem koma þar inn í. Góður espressó getur verið alveg ótrúlega góður og góður cappuccino ekki síðri. Machiato hentar stundum en það má segja að það sé eins konar lítill cappuccino, aðeins sterkari. Og nú þegar sumarið er komið er það heitasta auðvitað frappuccino. Eða ætti ég að segja það svalasta!
Hver er uppáhalds kaffitegundin þín?
Eins og með drykkina, er erfitt að eiga sér uppáhalds kaffitegund. Reyndar heillar kaffið frá Kenya og Eþíópíu mig og auk þess var ég á dögunum að kynnast stórkostlegu kaffi frá Brasilíu sem er kallað Yellow Bourbon. Það er ótrúlega sætt og ilmar af ristuðum möndlum.
Þitt hlutverk hjá Te & Kaffi felst mikið til í fræðslustarfi í dag. Geturðu sagt okkur meira um það?
Te & Kaffiskólinn er starfræktur í Hafnarfirði og þar eru haldin ýmiss konar námskeið. Bæði almenn fræðsla um kaffi og te, smakknámskeið ásamt námskeiðum fyrir kaffibarþjóna. Ég hef verið að taka að mér að miklu leyti námskeiðin fyrir kaffibarþjónana. Það er ótrúlega gefandi starf og ég hef ekki síður lært af því en þeir sem ég hef verið að þjálfa.

Það styttist í heimsmeistarmótið í Kaupmannahöfn, ertu spenntur?
Það má segja það. Ég hlakka mikið til að kynnast kaffibarþjónum víðsvegar úr heiminum og bæta við þekkingu mína.
Geturðu sagt okkur lítillega frá því út á hvað þessi keppni gengur?
Keppandi fær 15 mínútur til að laga handa fjórum smakkdómurum espresso, cappuccino og frjálsan drykk eftir eigin höfði, einn drykk af hverjum fyrir alla dómarana, samtals 12 drykki. Á meðan eru tveir tæknidómarar sem fylgjast vel með öllum vinnubrögðum keppanda. Og á heimsmeistaramóti er keppandi alltaf að laga gott kaffi, það heyrir til undantekninga ef raunin er ekki sú. Framsetningin, kaffi sem fer til spillis, hversu beint er þjappað, áferðin á mjólkinni, mjólk sem fer til spillis, hversu vel frjálsi drykkurinn er útskýrður og ýmis önnur atriði eru höfð til hliðsjónar í dómum. Dómarablöðin eru í raun stjarnfræðilega flókin og það eru 1012 stig í pottinum.
Hefurðu breytt þínu atriði mikið frá því á Íslandsmótinu hér heima í apríl síðastliðnum?
Já, talsvert. Heildarmyndin gengur auðvitað eins fyrir sig en frjálsi drykkurinn minn er alveg nýr, ég er með nýja kaffiblöndu sem ég hef sett saman sjálfur með aðstoð góðra manna hjá Te & Kaffi og eitt og annað framsetningaratriði er nýtt af nálinni.
Hvernig er með frjálsa drykkinn hjá þér?
Það er leyndarmál og kemur í ljós í keppninni sjálfri. Ég segi bara betur frá frjálsa drykknum þegar heim verður komið.
Hvernig líst þér á möguleika þína í mótinu?
Ég er nokkuð öruggur. Það eru yfir 50 þjóðir sem senda keppendur á heimsmeistaramótið í ár og eru mjög margir mjög góðir. Ég stefni að sjálfsögðu á sigur, ég lýg því ekki. En ef atriðið mitt gengur vel úti, ég kynnist fólki og læri eitthvað nýtt þá er markmiði mínu náð.
Það er ekki bara kaffibarþjóna keppni í Kaupmannahöfn á þessum tíma. Geturðu sagt okkur lítillega frá öðrum keppnisgreinum?
Heimsmeistaramót kaffibarþjóna verður í ár haldið í níunda skipti en auk þess eru fjórar aðrar minni kaffitengdar keppnir, heimsmeistaramót í kaffismökkun, mjólkurlist, kaffi í góðum vínanda og í ibrik kaffilögun. Heimsmeistaramót í kaffismökkun felst í að smakka átta sett af kaffibollum og komast að því hvaða bolli af þremur er frábrugðin hinum tveimur. Við höfum miklar væntingar til Árna Íslandsmeistara í kaffismökkun í þeirri keppni, enda varð hann í 2. sæti í fyrra. Í heimsmeistaramóti í mjólkurlist eru lagaðir 2 machiato, 2 cappuccino eða latte og 2 frjálsir drykkir og keppst um að mjólkurlistin í drykkjunum tveimur sé sem líkust. Í kaffi í góðum vínanda eru lagaðir 2 irish coffee og 2 frjálsir drykkir og bragð og tæknileg atriði dæmt, keimlíkt kaffibarþjónakeppninni. Ibrik kaffilögun er það sem við Íslendingar þekkjum sem tyrkneskt kaffi og er þetta í fyrsta skipti sem sú keppni er haldin.
Og við það er Pálmar rokinn. Það er mikið að gera hjá honum þessa dagana og stífar æfingar á næstu vikum til þess að fínpússa atriðið. Starfsfólk Te & Kaffi óskar Pálmari, Árna og Jónínu, sem og öðrum keppendum Íslands, góðs gengis á Heimsmeistaramótinu í Kaupmannahöfn.
