Nú er hægt að kaupa Yellow Bourbon kaffi frá Fazenda da Rainha frá Brasilíu í verslunum Te & Kaffi. Þetta er aðeins á meðan birgðir endast. Þetta kaffi er eitt af þremur í blöndunni sem Íslandsmeistari kaffibarþjóna notaði á Heimsmeistaramótinu í Kaupmannahöfn sem fór fram á dögunum.
Fazenda da Rainha liggur á Mogiana svæðinu við landamæri Minas Gerais og Sao Paulo héraðanna í Brasilíu. Kaffið vex í um 1300 metra hæð yfir sjávarmáli við 19 gráðu meðalhita sem eru kjöraðstæður fyrir kaffi. Kaffið dregur nafn sitt af því að berin eru gul þegar þau eru fullþroskuð, ólíkt venjulegum rauðum berjum.
Kaffið er mjúkt og sætt og hefur ómótstæðislegan möndluangan. Kíkið í verslanir Te & Kaffi og prófið kaffið sem Íslandsmeistari kaffibarþjóna mælir með.