
Nýjasta kaffihús Te & Kaffi var opnað á dögunum og er það jafnframt fyrsta kaffihúsið undir merkjum fyrirtækisins sem opnað er í öðru landi, nánar tiltekið í sólarparadísinni Alicante þar sem þúsundir Íslendinga eyða sumarfríinu sínu á hverju ári. Kaffihúsið er rekið af Kára Óskari Sverrissyni og Guðrúnu Þorgrímsdóttur sem eiga hlut í rekstrinum á móti Te & Kaffi og hafa þau í hyggju að opna fleiri kaffihús á Spáni.
Hugmyndin kviknaði fyrir tveimur árum þegar Kári og Guðrún, sem eru mikið kaffidrykkjufólk, fóru í frí til Spánar og fundu hvergi gott kaffi. Í framhaldi af því höfðu þau samband við Te & Kaffi með samstarf í huga. Þau fundu húsnæði við aðalverslunargötuna og til að halda íslenskri tengingu fengu þau íslenskan hönnuð, Hildi Ísdal Þorgeirsdóttur, til að hanna staðinn og þykir sú hönnun hafa heppnast mjög vel. Kári og Guðrún hyggjast opna tvö kaffihús til viðbótar á næstunni og verður spennandi að fylgjast með þróun mála á Spáni.
Kaffihúsið er með hefðbundinn matseðil þar sem hægt er að fá gómsætan mat; samlokur, panini, salöt og sushi að ógleymdum gómsætum tapasréttum. Nýjungar á borð við frappuccino og kaffi í götumálum eru ennfremur á boðstólum. Allir kaffibarþjónarnir hafa fengið þjálfun frá sérfræðingum Te & Kaffi og allt kaffi sem boðið er upp á er ristað hér í kaffibrennslunni okkar í Hafnarfirði.
Fyrir kaffiþyrsta Íslendinga á leið til Alicante þá er heimilisfang kaffihússins Calle Portugal 31, 03003 Alicante. Til upplýsingar fyrir þá sem þekkja til á svæðinu þá er kaffihúsið mjög nálægt El Corte Inglés verslunarmiðstöðinni og járnbrautarstöðinni sem eru mjög miðsvæðis í borginni.
