Nuova Simonelli Aurelia espressovélar og Mahlkönig kvarnir hafa verið valin af World Barista Championship sem samstarfsaðilar samtakanna og keppnistæki á heimsmeistaramótum kaffibarþjóna 2009-2011.
Nuova Simonelli er ítalskt framleiðslufyrirtæki sem sérhæfir sig í espressovélum. Fyrirtækið var stofnað árið 1936 og er með umboðsaðila í 102 löndum og 80% af framleiðslu fyrirtækisins fer á alþjóðlegan markað.
Mahlkönig er þýskur framleiðandi kaffikvarna og hefur verið í þeim bransa síðan 1924.
Það vill svo skemmtilega til að Te & Kaffi er umboðsaðili fyrir bæði fyrirtækin hér á landi. Við hjá Te & Kaffi erum stolt af þessum áfanga Nuova Simonelli og Mahlkönig og lítum á þessar fréttir sem áskorun til að standa okkur enn betur við að vinna með vörur fyrirtækjanna.
Sjá tilkynningu um samstarfið
hér.