Brazilía er stærsta kaffiframleiðslu land í heimi. Þar er að finna alskyns afbrigði af kaffi. Brazilíu kaffið er einkum þekkt fyrir lágt sýrustig ... nánar
Mjúkt grænt Sencha te frá Japan, ríkulega blandað með sólblómum og mango. Dásamlega sumarlegt! nánar
Skráning á póstlista.
Sala á bleiku slaufunni, árlegt söfnunarátak Krabbameinsfélags Íslands, hefst formlega í dag 1. október 2008 og erum við hjá Te & Kaffi stoltir þáttakendur í því verkefni. Í ár er slaufan sérhönnuð af Hendrikku Waage, sem hlotið hefur alþjóðlega viðurkenningu fyrir skartgripahönnun sína, og hefur félagið sett sér það markmið að selja 40 þúsund eintök af bleiku slaufunni fram til 15. október. Allur ágóði af sölu á bleiku slaufunni verður notaður til að ljúka greiðslu á nýjum, stafrænum röntgentækjum og öðrum búnaði til brjóstakrabbameinsleitar sem mun gera Krabbameinsfélaginu kleift að bjarga enn fleiri mannslífum. Nýi stafræni tækjabúnaðurinn er mikil tæknibylting og eitt stærsta verkefni Krabbameinsfélagsins í 57 ára sögu þess, en alls nemur kostnaður við tæki, forrit, uppsetningu og þjálfun starfsfólks sem stjórnar nýja búnaðinum ríflega 600 milljónum króna.
Bleika slaufan kostar 1000 kr og fæst í öllum sérverslunum og kaffihúsum Te & Kaffi. Allur ágóði rennur beint til Krabbameinsfélagsins.
Til eru mismunandi aðferðir við að rista baunir. Í stærri verksmiðjum þar sem framleiðslan er gríðarleg og kannski ekki lagt svo mikið upp úr gæðu... nánar
Hvar drekkur þú mest kaffi?