
Við hjá Te & Kaffi erum stöðugt að leita að því nýjasta og ferskasta í heimi kaffi og tedrykkja. En það má alls ekki gleyma súkkulaðidrykkjum sem margir eru sólgnir í. Nýjasta nýtt hjá Te & Kaffi heitir Choc-o-lait eða súkkulaði latte eins og við köllum það. Með bolla af flóaðri mjólk og tréhræru af súkkulaði tekur um eina mínútu af búa til girnilegan drykk.
Choc-o-lait er einfalt að búa til, á öðrum enda tréhræru er súkkulaðibiti úr ekta belgísku súkkulaði frá Callebaut. Bolli er fylltur af flóaðri mjólk og í henni bráðnar súkkulaðið á innan við mínútu og er hræran notuð til að hræra í drykknum.
Choc-o-lait er til í fjórum bragðtegundum; dökku súkkulaði, mjólkursúkkulaði, heslihnetu og cointreu.
Komdu á næsta kaffihús eða sérverslun Te & Kaffi og kynntu þér þessa bragðgóðu nýjung.
Frekari upplýsingar eru á heimasíðu framleiðandans www.choc-o-lait.com
