Nú eru jólatein komin aftur í sérverslanir Te & Kaffi, sömu frábæru tegundir og í fyrra.
Jólate –Sérblandað svart te með sætu kryddbragði
Jólateið er blanda af tei sem seld eru undir nafninu Ceylon, sem er eldra nafn Sri Lanka, og Kína tei en þessar tegundir þykja sérstaklega góðar sem grunnur í ýmiskonar teblöndur. Sérvalin sæt kryddblanda gefur teinu einstaklega ljúft og jólalegt yfirbragð þar sem ilmur m.a. af appelsínum, kanil og negulnöglum er ríkjandi
Notkun; 1-tesk. fyrir hvern bolla og látið trekkja í 3-5 mínútur.
Jólate er einstök blanda af svörtu tei og sætu kryddi sem einungis er fáanleg fram að jólum.
Frostrósarte-Krydduð ávaxtablanda með eplum, kókos, möndlum og ananas
Ávaxtate inniheldur eingöngu þurrkaða ávexti, blóm og jurtir og er bragðbætt með ávaxtaolíu. Teið inniheldur ekki koffein og er því heppilegur og hressandi drykkur fyrir unga sem aldna. Ávaxtate þarf að jafnaði að trekkja lengur en annað te eða 5-7 mínútur. Notkun; 1-2 tesk. fyrir hvern bolla og látið trekkja í 5-7 mínútur.
Frostrósarte er gómsæt ávaxtablanda án koffeins sem einungis er fáanleg fram að jólum.
Englate- Rauðrunna te með eplum, appelsínublómum,kanil og möndlum
Rauðrunna te eða rooisbos-te er koffein laust te sem á uppruna sinn að rekja til Suður-Afríku. Teið er, nú á tímum almennrar heilsumeðvitundar, himnasending fyrir þann lífsstíl sem margir stunda. Rauðrunna te þykja mjög bragðgóð te, eru full af vítamínum og eru einstaklega próteinrík. Rauðrunna te er talið sérlega gott fyrir svefninn og talið hafa góð áhrif á taugar og maga. Rautt te, eins og rauðrunna te nefnist stundum, inniheldur engin basísk efni og tanníninnihald þess er mjög lágt. Margir velja Rauðrunna te gegn vöðvaverkjum og þurrri húð, jafnvel exemi.
Notkun; 1-tesk. fyrir hvern bolla og látið trekkja í 3-5 mínútur.
Englate er koffeinlaus heilsudrykkur jólahátíðarinnar sem einstakt er að gefa eða njóta en einungis fáanlegt fram að jólum.
Aðventute- Grænt te með möndlum, vanillu og kanil
Margar rannsóknir hafa verið gerðar á grænu tei sem benda til þess að það geti verið góð forvörn gegn ýmsum kvillum og jafnvel sjúkdómum. Grænt te er ekki gerjað og er auðugt að ýmsum vítamínum og steinefnum ásamt því að innihalda koffein. Mest er talað um flavoníða í grænu tei en rannsóknir benda til þess að flavoníðar verji frumur líkamans og vinni gegn öldrun. Einnig eru þeir taldir geta hraðað efnaskiptum líkamans og margir nota grænt te í að viðhalda kjörþyngd. Grænt te er svo c-vítamínríkt að tveir bollar eru taldir jafngilda stóru glasi af hreinum appelsínusafa. Grænt te er allsherjar heilsudrykkur sem afar mikilvægt er að laga á réttan hátt til að varðveita eiginleika tesins- við lögun er sjóðandi vatn látið kólna niður í 80° og látið trekkja í 2-3 mínútur.
Notkun- 1-tesk. fyrir hvern bolla og látið trekkja í 2-3 mínútur.
Aðventute er einstök blanda af grænu tei sem bragðbætt er með öllu því helsta sem bragðlaukarnir vilja njóta á aðventunni.