Forsíða > Fréttir

Sul de Minas

Brazilía er stærsta kaffiframleiðslu land í heimi. Þar er að finna alskyns afbrigði af kaffi. Brazilíu kaffið er einkum þekkt fyrir lágt sýrustig ... nánar

Sencha Mango

Mjúkt grænt Sencha te frá Japan, ríkulega blandað með sólblómum og mango. Dásamlega sumarlegt! nánar


Um Fair Trade

UTZ

Rainforest Alliance

Skráning á póstlista.



Gjafakörfur frá Te & Kaffi eru hentug jólagjöf

Skrifað 18.11.2009



Hjá Te & Kaffi er alltaf hægt að finna hentugar tækifærisgjafir enda erum við með mikið úrval af ýmsu góðgæti í gjafakörfur. Nú fyrir jólin er úrvalið jafnvel enn meira og má nefna sem dæmi Hátíðarkaffið okkar sem er komið í nýjan og glæsilegan búning, After Dinner, Celebes Kalossi og Colombia Supremo svo einhverjar kaffitegundir séu nefndar. Jólateið er á sínum stað en einnig er hægt að fá Englate, Aðventute og Frostrósate. Gómsætt súkkulaði frá Cafe-Tasse og Monbana er einnig í boði, danskur handgerður brjóstsykur, sultur og síróp frá Routin. Síðast en ekki síst erum við með töluvert úrval af íslensku, handgerðu konfekti og súkkulaði frá Hafliða Ragnarssyni í Mosfellsbakarí en það er samstarf sem við erum virkilega ánægð með.

Smellið hér til að sjá sýnishorn af nokkrum þeim körfum sem hægt er að fá í verslunum Te & Kaffi. Það hefur einnig verið vinsælt hjá fyrirtækjum að versla jólagjafir sínar hjá okkur. Þeir sem hafa áhuga og vilja frekari upplýsingar skulu vinsamlegast hringja í þjónustusímann okkar 555-1910

Fréttabréf Te og Kaffi

Hæg ristun - Slow Roast

Til eru mismunandi aðferðir við að rista baunir. Í stærri verksmiðjum þar sem framleiðslan er gríðarleg og kannski ekki lagt svo mikið upp úr gæðu... nánar

Hvar drekkur þú mest kaffi?