
Te og Kaffi selur mikið úrval af koffeinlausum ávaxta og jurtateium. Jurtatein koma ekki af terunnanum sjálfum og er drykkurinn sem gerður er úr þeim oft nefndur jurtaseyði. Flestar tejurtir eru með léttu og fíngerðu bragði. Ýmist eru þetta hreinar jurtir eins og t.d. Kamilla eða Piparmynta, en einnig er gott að hella uppá jurtablöndur eins og Heilsubót. Það er blanda af lífrænni kamillu, sítrusberki, rósaberjum, sítrónugrasi, stokkrós og myntu. Þess má geta að kamilla er sérstaklega góð við ýmsum kvillum, róar magann, er góð við stressi og kvíða, gegn svefnleysi, og góð að drekka þegar maður er með kvef.
Ávaxtatein eru blönduð úr þurrkuðum ávöxtum ásamt bragðefnum. Þau eru yfirleitt sæt og með miklum ilmi og eru bæði góð heit og köld.
Einnig seljum við nokkrar tegundir af rauðrunnateum, sem einnig eru koffeinlaus. Rauðrunnate er ræktað í suður Afríku og er hollur og góður heilsudrykkur. Það er vöðvaslakandi og gott við svefnleysi og talið gott við ýmisskonar exemi.
Upplýsingar um öll tein eru á þessari heimasíðu undir : Te / tegundir