Forsíða > Fréttir

Sul de Minas

Brazilía er stærsta kaffiframleiðslu land í heimi. Þar er að finna alskyns afbrigði af kaffi. Brazilíu kaffið er einkum þekkt fyrir lágt sýrustig ... nánar

Sencha Mango

Mjúkt grænt Sencha te frá Japan, ríkulega blandað með sólblómum og mango. Dásamlega sumarlegt! nánar


Um Fair Trade

UTZ

Rainforest Alliance

Skráning á póstlista.



Íslandsmeistarinn frá Te & Kaffi

Skrifað 17.2.2009


Nú um helgina fór fram Íslandsmót kaffibarþjóna og var mótið haldið í Kringlunni að þessu sinni. Átján keppendur kepptu um titilinn besti kaffibarþjónn Íslands ásamt því að keppt var í mjólkurlistarkeppni. Á Íslandsmóti kaffibarþjóna eru framreiddir espresso, cappuccino og frjáls kaffidrykkur þar sem keppendur mega láta ímyndunaraflið ráða ferðinni og gera það yfirleitt með miklum tilþrifum.

Annað árið í röð sigraði Pálmar Þór Hlöðversson, frá Te & Kaffi, og var hann vel að sigrinum kominn. Hann mun keppa fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti kaffibarþjóna sem haldið verður í Atlanta í Bandaríkjunum um miðjan apríl. Í öðru sæti varð Harpa Hrund frá Kaffitári, Ragnhildur Edda Tryggvadóttir frá Te & Kaffi í þriðja sæti, Tumi Ferrer frá Kaffitári í fjórða sæti, Katrín Alfa frá Kaffitári í fimmta sæti og Ingibjörg Ferrer frá Kaffitári í sjötta sæti. Pálmar vann einnig verðlaun fyrir besta espresso og besta cappuccino ásamt því að verða í öðru sæti í mjólkurlistakeppninni. Árangur Ragnhildar Eddu Tryggvadóttur, sem lenti í þriðja sæti, þykir líka virkilega góður og fær hún sérstakt hrós fyrir frammistöðuna.

Þetta er í fjórða skipti á síðastliðnum sex árum sem kaffibarþjónn frá Te & Kaffi sigrar á Íslandsmóti kaffibarþjóna. Það ber vott um fagmennsku, metnað og þekkingu sem ávallt er haft að leiðarljósi hjá Te & Kaffi. Jónína Tryggvadóttir, starfsmaður Te & Kaffi til margra ára og Íslandsmeistari kaffibarþjóna 2005, sá um þjálfun okkar starfsfólks og stóð sig frábærlega í því hlutverki.

Starfsfólk Te & Kaffi óskar Pálmari góðs gengis á heimsmeistaramótinu í Atlanta og þakkar öllum keppendum Te & Kaffi fyrir gott mót.

Fréttabréf Te og Kaffi

Hæg ristun - Slow Roast

Til eru mismunandi aðferðir við að rista baunir. Í stærri verksmiðjum þar sem framleiðslan er gríðarleg og kannski ekki lagt svo mikið upp úr gæðu... nánar

Hvar drekkur þú mest kaffi?