Á morgun, fimmtudaginn 26. mars í Te & Kaffi Austurstræti kl. 09.00 mun Íslandsmeistari kaffibarþjóna framreiða kaffilatte í nýjum bollum eftir Ragnheiði Ingunni leirlistakonu.
Berglind og Sigmundur, eigendur Te & Kaffi, fá fyrstu bollana ásamt Ragnheiði Ingunni og gestum. Bollarnir munu verða notaðir og til sölu á kaffihúsi Te & Kaffi í Austurstræti 18 og sérverslun Te & Kaffi að Laugvegi 27.
Af þessu tilefni opnar sýning í samvinnu við Leirlistafélag Íslands sem verður í Te & Kaffi og Eymundsson Austurstræti 18 á meðan HönnarMars stendur yfir. Það eru 12 listamenn úr Leirlistarfélaginu sem munu sýna verk sín.
Íslandsmeistari kaffibarþjóna er Pálmar Þór Hlöðversson en hann er að undirbúa sig fyrir heimsmeistarakeppni kaffibarþjóna sem verður haldin í Atlanta í byrjun apríl. Þjálfari hans er Njáll Björgvinsson fyrrverandi Íslandsmeistari og kaffibarþjónn í Te & Kaffi Austurstræti.
Allir velkomnir