Nú hefur sérverslun okkar á Stjörnutorgi Kringlunnar verið opnuð á ný eftir miklar breytingar. Það var kominn tími til að gefa þeirri ágætu verslun smá andlitslyftingu og teljum við hjá Te & Kaffi að þær breytingar hafi heppnast mjög vel.
Verslunin er nú komin í sama stíl og hinar sérverslanirnar, á Laugavegi 27 og í Smáralind, ásamt því að settur hefur verið upp kaffibar í versluninni. Nú geta kaffiþyrstir gestir Kringlunnar loksins komið og fengið sér kaffidrykki hjá okkur.
Við hvetjum alla til að koma og skoða breytingarnar, kaupa uppáhaldskaffið og teið sitt og að sjálfssögðu að fá sér góðan kaffibolla hjá okkar frábæru kaffibarþjónum.
