Dagana 16.-19. apríl fór fram heimsmeistaramót kaffibarþjóna í Atlanta í Bandaríkjunum. Te & Kaffi átti fulltrúa í þessari keppni en Pálmar Þór Hlöðversson, Íslandsmeistari kaffibarþjóna síðustu tveggja ára, tók þátt fyrir Íslands hönd. Pálmar stóð sig með miklum sóma og endaði í 12. sæti. Við hjá Te & Kaffi óskum honum til hamingju með árangurinn og vitum að hann kemur reynslunni ríkari heim enda er keppni á borð við þessa mikill skóli fyrir þáttakendur.
Nánari upplýsingar um keppnina og myndir eru hérna.