Forsíða > Fyrirtækjaþjónusta

El Salvador San Antonio Rainforest

Kaffi var fyrst ræktað í El Salvador um miðja nítjándu öldina en þangað barst það frá Kúbu. Einkenni kaffis frá El Salvador er mýkt, gott jafnvægi, m... nánar

Sencha Goji Acai grænt te

Te marsmánaðar er grænt Sencha Goji Acai te með úlfaberjum og acai berjum. Þetta er mjög ljúffengt te með berja og ávaxtabragði. Innihald: Grænt te, þ... nánar


Um Fair Trade

UTZ

Rainforest Alliance

Skráning á póstlista.



Fyrirtækjaþjónusta

Te & kaffi; stundin-bragðið-stemningin

Sala og dreifing
Sala og dreifing á vörum frá Te og kaffi fer fram með þrennu móti: með smásölu í sérverslunum okkar, heildsölu til matvöruverslana, bakaría og fleiri endursöluaðila og síðast en ekki síst með þjónustu við hótel og veitingamarkaðinn sem leigu og sölu á kaffivélum, sölu á öllu hráefni sem þarf til og þjónustu og gæðaeftirlit við tæki og lögun hráefnis. Við fylgjum vörunni okkar eftir nánast alla leið ofan í bolla neytenda.

Sérþekking á öllum tækjum
Sölumenn okkar búa yfir sérþekkingu á þeim vélum og búnaði sem þarf til að laga hinn fullkomna bolla. Te og kaffi er með umboð fyrir espressovélar, uppáhellingarvélar og sjálfvirkar kaffivélar frá þekktum framleiðendum eins og Nuova Simonelli, Schaerer, Aequator, Ascaso og fleirum sem allar eiga það sameiginlegt að standast hæstu gæðakröfur. Hafið endilega samband. Hringið í síma 555-1910

Samstarf við fyrirtækjaþjónustu Pennans
Nú nýverið hóf Te & kaffi samstarf við fyrirtækjaþjónustu Pennans varðandi sölu / leigu og dreifingu á kaffivélum og hráefni inn á fyrirtækjamarkaðinn eða skrifstofumarkaðinn eins og hann er oft kallaður. Sé þitt fyrirtæki að velta því fyrir sér að koma sér upp kaffilausnum þar sem gæðin eru í fyrirúmi er um að gera að hafa samband við vörustjóra kaffis hjá Pennanum sem mun fara í gegnum þarfagreiningu þíns fyrirtækis af kostgæfni. Einnig er hægt að hringja í aðalnúmer Pennans 540-2000.

Te og kaffi er jafnframt með tæknimenn á sínum snærum sem hafa mikla reynslu af viðhaldi og viðgerðum. Við getum því ábyrgst fyrsta flokks þjónustu sniðna að þínum þörfum.

Hafið endilega samband.

Fréttabréf Te og Kaffi

Hæg ristun - Slow Roast

Til eru mismunandi aðferðir við að rista baunir. Í stærri verksmiðjum þar sem framleiðslan er gríðarleg og kannski ekki lagt svo mikið upp úr gæðu... nánar

Hvar drekkur þú mest kaffi?