Forsíða > Kaffi

El Salvador San Antonio Rainforest

Kaffi var fyrst ræktað í El Salvador um miðja nítjándu öldina en þangað barst það frá Kúbu. Einkenni kaffis frá El Salvador er mýkt, gott jafnvægi, m... nánar

Sencha Goji Acai grænt te

Te marsmánaðar er grænt Sencha Goji Acai te með úlfaberjum og acai berjum. Þetta er mjög ljúffengt te með berja og ávaxtabragði. Innihald: Grænt te, þ... nánar


Um Fair Trade

UTZ

Rainforest Alliance

Skráning á póstlista.



Kaffi

Kaffið okkar

Hráefnið
Kaffirækt fellur undir sömu náttúrulegu lögmál og vínrækt. Við þekkjum og finnum muninn á góðu og slæmu víni, drekkum góð vín og njótum eiginleika þeirra og bragðgæða. Sama gildir um kaffi; sífellt fleiri finna muninn á góðu og slæmu kaffi og drekka það til að njóta eiginleika, sérkenna og bragðgæða hverrar tegundar.
Hið fjölbreytta bragð sem kaffið hefur fer eftir því hvar kaffið vex og við hvaða aðstæður. Arabica og Robusta eru aðal stofnarnir. Í útliti er lítill munur á þessum tegundum, en í bragðgæðum er gífurlegur munur. Arabicakaffið er ljúffengara og mun bragðbetra, en Robusta er hrjúfara og aðallega notað í iðnaðar- og skyndikaffi.
Þrátt fyrir að Arabicakaffið sé um 75% af markaðsframleiðslunni, teljast aðeins 10% þess alveg sérstakt gæðakaffi. Sömu lögmál gilda um kaffi og vín, því betri sem vaxtarskilyrði og meðhöndlun á berjunum eru þeim mun betra verður kaffið í bollanum.

Þeir þættir sem hafa áhrif á gæðin eru loftslag, landfræðileg lega, jarðvegur, hæð yfir sjávarmáli og plantan sjálf. Síðan aðferðir við ræktun, uppskerutími, framleiðslan, undirbúningur og flokkun. Því er nauðsynlegt að vera vandlátur og hafa mikla þekkingu til að fullnægja þeim markaði sem við viljum vinna á. Allt hráefni okkar er valið af kostgæfni af kaffisérfræðingum fyrirtækisins.

Í kaffibrennslunni okkar erum við vel tækjum búin. Við ristum baunirnar daglega í blástursofni sem hitaður er með gasi. Í honum ristast baunirnar í heitu lofti sem er langbesta aðferðin. Ristunin verður jafnari og hægt er að rista við lægra hitastig. Við ristunina losnar um náttúrulegar bragðolíur sem gefa kaffinu sitt margbreytilega bragð. Bestu kaffitegundirnar hafa tvisvar til þrisvar sinnum meira af náttúrlegum bragðolíum en aðrar kaffitegundir.

Til að smakka kaffið þurfum við að hafa mikla þekkingu og vel þjálfaða bragðlauka. Við smökkum kaffið fyrir hver innkaup og eftir ítarlegt mat okkar sélfræðinga sem eru með þeim bestu og hæfustu í heiminum.

Markmið okkar er og hefur alltaf verið að bjóða einungis hágæðakaffibaunir frá bestu ræktunarsvæðum hvers lands.

Fréttabréf Te og Kaffi

Hæg ristun - Slow Roast

Til eru mismunandi aðferðir við að rista baunir. Í stærri verksmiðjum þar sem framleiðslan er gríðarleg og kannski ekki lagt svo mikið upp úr gæðu... nánar

Hvar drekkur þú mest kaffi?