Forsíða > Kaffi > Kaffið

Sul de Minas

Brazilía er stærsta kaffiframleiðslu land í heimi. Þar er að finna alskyns afbrigði af kaffi. Brazilíu kaffið er einkum þekkt fyrir lágt sýrustig ... nánar

Sencha Mango

Mjúkt grænt Sencha te frá Japan, ríkulega blandað með sólblómum og mango. Dásamlega sumarlegt! nánar


Um Fair Trade

UTZ

Rainforest Alliance

Skráning á póstlista.



Kaffið

Kaffið

Kaffi er handunnin framleiðsla og þær tegundir af baunum sem notaðar eru í morgunkaffibollana okkar hafa farið í gegnum nákvæma rannsókn og mikla umhyggju. Arabica og Robusta eru aðal stofnarnir.
Í útliti er lítill mismunur á þessum tegundum. En í bragðgæðum er gífurlegur munur. Arabicakaffið er Ijúffengara og mun bragðbetra. Robusta hrjúfara og er aðallega notað í iðnaðar- og skyndikaffi.
Þrátt fyrir að Arabicakaffið sé um 75% af markaðsframleiðslunni, teljast aðeins um 10% þess alveg sérstakt gæðakaffi, sem selt er í sérstökum kaffiverslunum.



Arabica baunirnar vaxa yfirleitt í 700 til 2000 metra hæð yfir sjávarmáli, þar sem er kaldara loftslag. Hægur vaxtarhraði gefur baununum meira bragð. Hitastig og regntímabil hvers ræktunarlands ráða því hversu margar uppskerur plantan gefur af sér árlega. Í löndum þar sem regnið dreifist jafnt yfir árið getur kaffiplanta verið með blóm, óþroskuð kaffiber og þroskuð ber, allt í senn á sömu greininni. Regn skiptir miklu máli fyrir plöntuna. Innan tveggja vikna frá regni, byrjar kaffiplantan að blómstra.



Kaffibaunirnar eru fræin sem eru inni í hinu þroskaða kaffiberi. Kaffitréð verður að vera orðið 5 ára gamalt áður en það fer að bera ávöxt.
Fyrst koma fíngerð blóm með jasmínilmi á tréð. Þessi blóm standa í u.þ.b. 3 daga. Á næstu 6 til 9 mánuðum þroskast ávextir eða ber trésins.
Þegar þau þroskast breytist litur þeirra úr grænum í gulan og síðan í djúprauðan.
Tvær ílangar baunir sem liggja hver á móti annarri eru innan í berinu.



Kaffiplantan getur orðið um 7 metra há ef hún er ekki klippt. Eitt tré getur framleitt úrvals ávexti í 25 ár.
Hún þarf mikla umhyggju fyrstu árin. Flestum plöntunum er fjölgað með græðlingum. Aðeins ber sem eru fullkomin að lögun og lit eru valin til fjölgunar. Þegar lauf byrja að myndast á nýjar plöntur er plantan tekin úr beinni sól og sett í skugga. Eftir 6 til 18 mánaða "uppeldi" er plöntunum plantað í akra. Birtuskilyrði skipta miklu máli fyrir kaffiplöntuna og er t.d. mjög gott að planta henni á hæðum, þar sem hún fær sól hluta úr deginum.



Þar sem kaffiberin eru á ýmsum þroskastigum þarf að handtína öll þroskuð ber frá hinum óþroskuðu. Þá ganga verkamennirnir með körfur og tína þar ofaní. Þetta þarf að gera á 8 til 10 daga fresti þar sem tína verður jafnóðum öll ber sem þroskast. Þar sem berin þroskast öll á sama tíma er svokölluð strípitínsla. Kaffistínslufólkið verður að vera mjög fært í að handtína og að þekkja þroskuð ber frá óþroskuðum, af því að ónýt ber geta eyðilagt afganginn af uppskerunni. Vant fólk getur tínt í kringum 50 - 100 kg af kaffiberjum á dag. Aðeins um 20% af því magni eru kaffibaunir. Hvert kaffitré gefur af sér uppskeru sem er aðeins 500 - 750 gr. af brenndum kaffibaunum á ári.



Hið fjölbreytta bragð sem kaffið hefur fer eftir því hvar kaffið vex og við hvaða aðstæður. Einnig er mikill gæðamunur innan sama lands.
Betri akrar gefa betra kaffi og fyrir það fæst hærra verð. Frá fræi og að kaffinu í kaffibollanum okkar er langur ferill, þar sem hver þáttur skiptir miklu máli um hvernig hið endanlega bragð verður.



Við hjá Te â Kaffi rekum litla kaffibrennslu þar sem við brennum allt okkar kaffi við gas í blástursofni, sem tryggir besta árangur sem þekkist í dag. Það er markmið okkar að bjóða einungis fyrsta flokks kaffi frá bestu ræktunarsvæðum hvers lands. Allt hráefni er því valið af kostgæfni þar sem gæðin eru í fyrirrúmi. Við kappkostum að kaffið sé ávallt ferskt í verslunum okkar.

Fréttabréf Te og Kaffi

Hæg ristun - Slow Roast

Til eru mismunandi aðferðir við að rista baunir. Í stærri verksmiðjum þar sem framleiðslan er gríðarleg og kannski ekki lagt svo mikið upp úr gæðu... nánar

Hvar drekkur þú mest kaffi?