Mikil eftirspurn er eftir betri kaffitegundum og þekking almennings á kaffi og kaffidrykkjum góð. Fjölbreytt úrval af ýmiskonar kaffikönnum og vélum gerir kaffilögunina fjölbreyttari . Það er gaman að nota mismunandi kaffitegundir eftir því hvert tilefnið er.
Aðferðir við að laga kaffi
Pressukanna
Gott er að hita glerið í könnunni með heitu vatni áður en hellt er uppá.
Hæfilegt magn af kaffi er 4-5 kaffiskeiðar í 8 bolla könnu og u.þ.b. 2 skeiðar
í 3ja bolla könnu. Sjóðið vatn og hellið yfir, gott er að hræra upp í kaffinu og láta standa í 3-4 mínútur áður en síunni er þrýst niður. Mælt er með grófmöluðu kaffi í pressukönnur.
Espressokanna
Kalt vatn er sett í neðsta hluta kaffikönnunnar upp að ventlinum.
Síðan skal sléttfylla síuna sem er í miðjunni, án þess að þrýsta kaffinu
of fast niður. Þá er kannan skrúfuð saman og sett á eldavélahellu, best er að hafa stillt á hæsta straum í byrjun, þar til fer að sjóða. Kaffið á síðan að sjóða hægt upp í efri hluta könnunnar..
Espresso / Cappuccino vélar:
Espresso/cappuccino vélar eru sífellt að verða vinsælli sem heimilisvélar.
Í þeim er hægt að freyða mjólkina í cappuccino, auk þess að gera espresso,
eða svart kaffi. Hjá okkur fást smart espressovélar í öllum litum. Sjá á heimasíðu Ascaso nánar um vélarnar en það eru Dream vélarnar sem við erum að selja. http://www.ascaso.com/cafe/2005/eng_cafe05/dream.html
Mjólkurkremari / Creamer
Kremari er notaður til þess að hita og freyða mjólk í cappuccino.
Hella skal mjólk í 1/3 af könnunni og hita án þess að sjóða. Taka svo af hitanum og strokka í 15-20 sek. og bíða í 20 sek. áður en hellt er yfir kaffið. Ál- og stálkremarar eru notaðir á hellu eða gas, og gler- eða leirkremarar í örbylgjuofn.