Mið-Ameríka og Karabíska svæðið:
Costa Rica
Tarrazu San Rafael
Costa Rica Tarrazu er af mörgum talið vera eitt besta og eftirsóttasta kaffi heims. Það er þekkt fyrir létt og frísklegt berjabragð og unaðslega angan. Kaffið er meðalristað, mjög ilmríkt með mikilli fyllingu. Tarrazu San Rafael hefur öðlast ákveðinn virðingarsess meðal kaffiunnenda og er oft nefnt Burgundhi Suður Ameríska kaffisins.
Costa Rica
Tarrazu Don Quijote
Verðlaunakaffi frá Costa Rica. Sérstök kaffiúttektarnefnd á Costa Rica (Specialty Coffee Association of Costa Rica) veitir verðlaun til bænda sem skara fram úr í gæðum. Flauelsmjúkt og framúrskarandi kaffi.
Cuba
Extra Turqino
Kaffið okkar frá Cubu heitir Extra Turquino og eru það flokkaðar úrvalsbaunir. Kaffið er fremur dökkristað, hefur mikla fyllingu og lágt sýrustig. Það er þekkt fyrir sérlega hreint eða tært bragð. Turqino er í góðu jafnvægi, sætkryddað með sérstökum reyktum keim.
Dóminiska lýðveldið
Santo Domingo Barahona AAA
Það var byrjað að rækta kaffi frá Dóminiska lýðveldinu á 18. öld og kallast kaffið þaðan Santo Domingo. Besta kaffið kemur frá héraði sem heitir Barahona Santo Domingo Barahona er ljósristað og hefur mjög gott jafnvægi. Sýrnin er yfir meðallagi og kaffið sem er fremur milt hefur góða fyllingu. Það er yndisleg lykt af nýmöluðu Santo Domingo og ljúfa sæta bragðið svíkur engan. Kaffið líkist hvað mest Jamaica Blue Mountain.
Guatemala
Antigua
Megnið af framleiðslunni fer fram í suðurhluta landsins þar sem hlíðar eldfjallanna skapa kjöraðstæður til að rækta hágæða arabicakaffi. Antigua kaffið er ræktað hátt uppi í hlíðum fjallanna, það er í fullkomnu jafnvægi og hefur mikla og góða fyllingu frísklega sýrni og léttkryddaðan ljúffengan keim.
Guatemala
Shum Chapel – skuggakaffi
Shum Chapel búgarðurinn er í Quiche sem er hérað í suðvestur hluta Guatemala. Vegna fjarlægðar og tungumálaerfiðleika (innfæddir tala ekki spænsku heldur sérmállýsku) hefur þessi akur verið næstum óþekktur í Guatemala og aðferðir í vinnslunni eru óbreyttar frá því kaffirækt hófst þar árið 1906. Brol fjölskyldan heldur fast í aldagamlar hefðir og náttúruleg gerjun á sér stað til að fjarlægja aldinkjötið frá kjarnanum. Allt kaffið er sólþurrkað sem eykur bragðgæði. Búgarðurinn er umlukinn tindum Los Cuchumatanes fjallanna þar sem rakur vindurinn kemur yfir regnskóginn og mætir köldu fjallaloftinu svo við það skapast óvenjulegt loftslag og kjöraðstæður til ræktunar. Shum Chapel er 100% ræktað í skugga ” Ingatrjáa” sem skapa enn betra loftslag fyrir trén og næra jarðveginn.
Jamaica
Jamaica Blue Mountain
Blue Mountain er eitt allra besta kaffiræktunarsvæði heims og vex kafið þar í 2,1 km hæð yfir sjávarmáli. Kaffið sem er flutt út frá Jamaika er vottað og innsiglað í trétunnum. Þess má geta að akrarnir eru mjög litlir og því ekki stór uppskera á ári. Kaffið er ljósristað og hefur fullkomið jafnvægi, mjög mikla líflega ávaxtasýrni, fullkomna bragðfyllingu og mikinn og ljúfan angan. Einstakt bragð og upplifun. Meðal dýrustu kaffitegunda í heimi.
Panama
Bouqet
Baunirnar eru handtíndar af Ngobe Indíánum þar sem kaffið vex frjálst hátt uppi í hlíðum fjallanna þar sem svalt loftslag er allt árið um kring. Þeir taka einungis bestu baunirnar hverju sinni og fara allt að 5 sinnum yfir hvert tré á uppskerutímanum svo að það eru aðeins þessar bestu baunir sem eru fluttar út. Kaffið er ljósristað silkimjúkt og sætt, með góðri fyllingu og fínni sýrni. Það er í mjög góðu jafnvægi og er meðal bestu kaffitegunda veraldar.
Puerto Rico
Yauco Selecto
Yauco Selecto er ein af allra bestu kaffitegundum heims. Kaffið er ræktað mjög hátt uppi í fjöllum. Til að tryggja gæðin eru baunirnar handtíndar og er strangt gæðaeftirlit í gegnum allt ferlið. Hver baun er skoðuð og dæmd. Selecto (þýðir sérvalið) er innan við 1% af heildarframleiðslu Puerto Rico og vex einungis á þremur ökrum. Kaffið er ljósristað, það hafur mjög mikla fyllingu og er þekkt fyrir dásamlega lykt. Kaffið er í frábæru jafnvægi og hefur fágað bragð. Það má finna hnetu og möndlukeim ásamt súkkulaðikenndu eftirbragði.
Kyrrahafssvæðið:
Hawaii
Kona Extra Fancy
Skilyrðin til ræktunar eru fullkomin á Hawaii þar sem rétt magn af rigningu og sól viðhelst allt árið um kring og þar er einnig frostlaust. Vegna þessara kjöraðstæðna ramleiðir Hawaii mjög mikið magn arabica bauna en samt er erfitt að fá hið eina sanna Kona kaffi, flokkað sem Extra Fancy. Kaffið er silkimjúkt, mjög bragðfyllt og einstaklega ilmríkt. Það hefur lága sýrni, mjög gott jafnvægi og keim af hnetu. Baunirnar þykja þær fallegustu í heimi. Þrátt fyrir hátt verð er það skylda hvers kaffiunnenda að smakka þetta fágæta kaffi.
S-Ameríka:
Brasilía
Sul de Minas
Brasilía er stærsta kaffiframleiðsluland í heimi. Þar er að finna allskyns afbrigði af kaffi. Brasilíukaffi er einkum þekkt fyrir lágt sýrustig og mjúkt bragð. Sul de Minas er stærsta kaffiræktunarsvæði í Brasilíu og kaffið þaðan er talið það besta frá Brasilíu. Kaffið er ljósristað og hefur lágt sýrustig, meðalfyllingu og er flauelsmjúkt í munni.
Columbia
Supremo
Columbia er næst stærsta kaffiframleiðsluland heims. Baunirnar eru ræktaðar í öllum hæðum, s.s. við fjallsrætur, í miðjum fjallshlíðum og efst í fjöllunum. Þess vegna eru baunirnar tíndar nær allt árið um kring ólíkt því sem sem gerist í öðrum löndum. Columbia Supremo er besta kaffið frá Columbiu. Það hefur góða fyllingu, meðal sýrni og lítilsháttar hnetukeim. Ilmríkt kaffi í góðu jafnvægi.
Indónesía:
Sulawesi
Celebes Kalossi
Celebeseyjan, betur þekkt sem Sulawesi, hefur takmarkað svæði til kaffiræktunar hátt yfir sjávarmáli. Allar bestu gæðabaunir Celebes eru ræktaðar í héraðinu Kalossi og eru innan við helmingur framleiðslunnar þar. Uppskeran er mjög lítil hverju sinni
Einstök bragðfylling, lág sýrni, hunangsmjúkt bragð og kryddkeimur gera Kalossi að sérstöku og fágætu kaffi.
Sulawesi
Toraja “falinn fjársjóður”
Hollendingar plöntuðu þessu kaffi fyrir seinni heimsstyrjöldina og var landið sem kaffið var ræktað á kallað paradís vegna hinna fullkomnu skilyrða til kaffiræktunar. En eftir stríð einangraðist kaffið algjörlega og það var ekki fyrr en 1986 að goðsögnin var endurlífguð af Solocto fyrirtækinu sem byrjaði að rækta kaffi á ný á “ á týnda akrinum”.
Hver einasta baun fer í gegnum sérstakt gæðaferli og aðeins bestu baunirnar eru seldar. Þettta kaffi er í algjörum sérflokki og þykir meðal bestu kaffitegunda heims. Kaffið er mjúkt og í ótrúlega góðu jafnvægi. Hið sérstaka bragð Toraja svíkur engan.
Nýja Gínea
Papua Sigri AA
Meirihluti kaffiframleiðslu Papúa er í höndum innfæddra sjálfstætt starfandi smábænda Kaffið vex nærri eingöngu hátt uppi. Sigri AA er meðalristað með góðri fyllingu og lágu sýrustigi. Það er í góðu jafnvægi og hefur fágaðan og örlítið kryddaðan eftirkeim.
Sumatra
Blue Lington
Sumatra er næststærsta eyjan í Indónesíu. Blue Lingtong er þekkt fyrir mikla og góða fyllingu, langt eftirbragð og létta sýrni. Kaffið er meðalristað og hefur ljúffengan eftirkeim.
Old Java
Þetta dökkristaða Indónesíukaffi er þétt og eilítið þungt með mikla súkkulaðikennda bragðfyllingu og langt eftirbragð.
Afrika:
Eþíópía
Mokka Sidamo
Eþíópía er upprunaland kaffisins og er nafnið kaffi er dregið af bæ í Eþíópíu sem heitir Kaffa. Kaffið frá Eþíópíu þykir mjög óvenjulegt. Sidamo er hérað í S-Eþíópíu og kaffi þaðan er mjög eftirsótt meðal sælkera.Það hefur létta fyllingu og óvenjulegt ávaxta og víntónað eftirragð. Kaffið er silkimjúkt og hefur frekar hátt sýrustig.
Kenya
Kenya AA Extra Fancy
Kenya kaffi er næstum allt ræktað í 1500-2100 m hæð. Kaffiiðnaðurinn í Kenya er tekinn mjög alvarlega og bannað er með lögum að eyðileggja kaffitré. Ein allra besta kaffitegundin í Kenya er AA Extra Fancy. Það hefur einstaklega gott jafnvægi, mjög góða fyllingu og er sérlega ilmríkt og líflegt með hreint víntónað ávaxtabragð og súkkulaðkryddað eftirbragð. Við meðalristum þetta kaffi.
Espresso- og kaffiblöndurnar okkar:
Espresso Hússins
Okkar ljúffenga espressoblanda, rúmlega meðalristuð. Sætur og mjúkur sem espresso, með góðri fyllingu og karamellukeim. Af mörgum talinn “hinn eini sanni” espresso.
Espresso Pasero
Ferðalag um fjórar heimsálfur. Kraftmikil og dökkristuð blanda með sterku og góðu krydduðu eftirbragði. Einstaklega mikil fylling með ávaxtatónaðri sýrni.
French Roast
Dökkristuð blanda sem samanstendur af kaffi frá Mið og Suður Ameríku. Kröftugt og vel fyllt kaffi. Sýrni og sætleiki í góðu jafnvægi, ómótstæðileg angan.
After Dinner
Farið er víða um heim til að ná samspili ólíkra kaffitegunda sem mynda góða bragðsynfóníu sem tilvalið er að njóta við öll tækifæri. Frekar dökkristað þétt kaffi með súkkulaðikrydduðu eftirbragði.
Vínarkaffi
Vínarkaffið okkar er sannkallað veislukaffi þar sem ólíkar tegundir blandast vel. Það er frísklegt mjúkt og bragðmikið, gott að njóta við öll tækifæri.
Columbia koffínlaust kaffi
Koffínið er fjarlægt úr kaffibauninni með sérstakri náttúruvænni meðhöndlun. Það hefur ekki áhrif á bragð kaffisins.