Baróninn höfundur drykks er Jónína S. Tryggvadóttir - Íslandsmeistari kaffibarþjóna 2005
Uppskriftin er miðuð við einn drykk.
Espresso eða sterkt lagað kaffi (c.a.3-4 cl.)
8 cl nýmjólk
12 gr. Cafe Tasse Noir Praline súkkulaði (fæst í Te og Kaffi)
1 tsk Routin Hazelnut sýróp (fæst í Te og Kaffi)
3-4 tsk hálfþeyttur rjómi
Aðferð: Sýrópið er sett í botninn og kaffinu helt yfir. Mjólkin er hituð ásamt súkkulaðinu og sett út í drykkinn. Toppað með hálfþeyttum rjóma. Skemmtilegt er að skreyta drykkinn með söxuðum hnetum, t.d. heslihnetum. Verði ykkur að góðu!
CHAI LATTE
2 tsk Spicy Chai te (fæst í Te og Kaffi), 1 tsk negulnaglar, 1/2 kanilstöng, 2 tsk Routin Chai sýróp (fæst í Te og Kaffi), 9 cl heitt vatn, 14 cl af nýmjólk.
Aðferð: Teið er lagað (látið trekkja í 2-3 mín), neglul, kanil og sýrópi blandað útí og látið standa í 3-5 mín. Þá er kryddið sigtað frá teinu og hellt í glas. Nýmjólkin er hituð og hellt yfir.
MÖNDLUDRAUMUR
1/2 bréf möndlu bragðbættur kakódrykkur frá Monbana (fæst í Te og Kaffi), 15 cl mjólk, 1 tsk amaretto sýróp frá Routin (fæst í Te og Kaffi) og saxaðar möndlur.
Aðferð: Mjólkin er hituð og kakóduftinu hrært vel út í hana. Sýrópinu svo blandað saman við og skreytt með söxuðum möndlum og kakódufti