Tefræðin:
Telaufin eru þurrkuð og gerjuð lauf sígræna runnans camellia sinensis eða afbrigðis hans sem kallast camellia assamica. Terunninn getur náð töluverðri hæð, en er klipptur niður til að auðvelda tínslu og fjölga blaðknúppum.
Einungis blöðin eru notuð við uppskeru, stilkur með toppum og tveimur blöðum. Því yngri og fíngerðari sem blöðin eru því betra verður teið. Úr neðri blöðunum er unnið grófara te og er það þá oft malað og notað í grisjute.
Eftir tínslu eru laufin látin þorna í sólinni I 16 – 20 tíma, þá marin í þar til gerðum vélum og látin gerjast í tvo til þrjá tíma í rakamettuðu umhverfi. Eftir það er teið þurrkað í upphituðu lofti í u.þ.b. 20 mín. Ef búa á til grænt te er gufa látin leika um laufin áður en þau eru marin og þau ekki látin gerjast. Einnig er til svokallað Oolong te sem er hálfgerjað.
Helsta teræktarland heims er Indland, en Kína er ekki langt á eftir. Sri Lanka (Ceylon) er svo í þriðja sæti. Einnig er talsvert framleitt af tei í Afríku og Indónesíu.
Hvernig laga á gott te?
Nota skal tesíu, þar sem mikilvægt er að fjarlægja laufin eftir tiltekinn tíma svo að teið verði ekki rammt. Mælið í síuna 1 tsk fyrir hvern bolla. Þegar vatnið sýður hellið því strax yfir telaufin og látið trekkja í 3 – 5 mínútur. Fjarlægið þá síuna.
Gróft te skal trekkja lengur en fínskorið te. Fínustu tegundir frá Darjeeling þarf t.d. að passa sérstaklega vel.
Að laga grænt te:
Það þarf að sjóða vatnið, en láta það síðan kólna aðeins (c.a.80°) áður en því er hellt yfir laufin, síðan á það að trekkja í 2-3 mínútur (ekki lengur). Hægt er að hella tvisvar uppá sömu telaufin og trekkja þau þá aðeins lengur í seinna skiptið.