Ávaxtate inniheldur eingöngu þurrkaða ávexti, blóm og jurtir og er bragðbætt með ávaxtaolíu. Þannig er það að sjálfsögðu teín- eða koffínlaust og því heppilegur og hressandi drykkur fyrir alla, unga sem aldna. Ávaxtate þarf að trekkja fremur lengi, eða 5-7 mínútur.
Besta nýtingin fæst þó með því að sjóða uppá því og láta síðan trekkja undir loki. Þegar laga á íste er gott að sæta ávaxtateið á meðan það er heitt, t.d. með hunangi og setja síðan klaka í það þegar það hefur kólnað, eða geyma það í ísskáp.