Forsíða > Te > Undirflokkar > Grænt te

Peru Villa Rica

Þetta kaffi er ræktað í Villa Rica héraðinu við rætur Andes fjalla. Það er ræktað í skugga Inga trjáa og innan um fágæta fugla eins og páfagauka og ló... nánar

Rauðrunna Mango

Koffeinlaust rauðrunnate með mangóbitum, blómum og jurtum. Dásamlegur haustdrykkur, bæði heitur og kaldur. Innihald: rauðrunnate, mangóbitar, bragðefn... nánar


Um Fair Trade

UTZ

Rainforest Alliance

Skráning á póstlista.



Grænt te

Dæmigert fyrir grænu tein er góður, léttur ilmur og örlítið bitur eftirkeimur.  Þegar grænt te er lagað, þarf að vernda eðlisþætti bragðsins.  Einkum þarf að skoða vel hitastig vatnsins, þar sem ekki má hella sjóðandi vatni á grænt te, það skaðar teið.  Í stða þess lætur maður vatnið kólna niður í ca 80°c og hellir þá yfir teið.  Í þessum flokki eru t.d. Bancha,  Sencha og Macha.  Einnig eru til bragðbættar Sencha tegundir.  Liturinn á uppáhelltu tei er fallega ljósgulur. 

Bancha og Sencha eru þekktustu grænu tein frá Japan.  Þau eru ekki gerjuð og eru auðugt af vítamínum og steinefnum, svo sem A, B1, C, kalki, járni, sodium, potassíum og sínki. Strax eftir að laufin eru týnd eru þau sett í gufu og síðan þurrkuð.
Japanskt te þykir gott fyrir húðina,  ver gegn tannskemmdum,  og er talið gott við æðaþrengslum og háum blóðþrýstingi.  Grænt te er talið svo C vítamínríkt að tveir bollar af grænu tei gefa jafnmikið C vítamín og stórt glas af hreinum appelsínusafa.

Fréttabréf Te og Kaffi

Hæg ristun - Slow Roast

Til eru mismunandi aðferðir við að rista baunir. Í stærri verksmiðjum þar sem framleiðslan er gríðarleg og kannski ekki lagt svo mikið upp úr gæðu... nánar

Hvar drekkur þú mest kaffi?