Rauðrunnate vex í Suður-Afríku og er unnið úr nálum rauðrunnans. Það inniheldur ekkert teín/koffín. Rauðrunnate bragðast sem best te og er ódýr og góður heilsudrykkur. Mjög er mælt með rauðrunnatei við svefnleysi og fyrir þá sem hafa viðkvæman maga eða taugar. Það inniheldur engin basísk efni og tanníninnihald þess er aðeins 1%. Sérstaklega er það talið gott við ýmiss konar vöðvaverkjum sé það drukkið að jafnaði. Einnig er það talið gott við ýmisskonar exemi.