Forsíða > Te > Undirflokkar > Svart te

Peru Villa Rica

Þetta kaffi er ræktað í Villa Rica héraðinu við rætur Andes fjalla. Það er ræktað í skugga Inga trjáa og innan um fágæta fugla eins og páfagauka og ló... nánar

Rauðrunna Mango

Koffeinlaust rauðrunnate með mangóbitum, blómum og jurtum. Dásamlegur haustdrykkur, bæði heitur og kaldur. Innihald: rauðrunnate, mangóbitar, bragðefn... nánar


Um Fair Trade

UTZ

Rainforest Alliance

Skráning á póstlista.



Svart te


 

Svart te skiptist í raun í tvo flokka, fínlegt svart te og kröftugt svart te.

Fyrri skilgreiningin á við um te með léttu, fínlegu bragði og miklum ilmi.   Það er þetta sérstaka bragð sem gerir þetta te eftirsótt.  Tegundirnar eru mismunandi, en eiga það sameiginlegt að ilmurinn er mikilvægur og á þátt í bragðupplifuninni.  Passa verður vel uppá að trekkja það ekki of lengi, þá verður það rammt og ljúfa bragðið tapast.  Liturinn á uppáhelltu tei er ljósgullinn eða gulur.

Þetta eru t.d. Darjeeling te sem er svart, ásamt Oolong tei, sem er hálfgerjað og hvítu tei.

 

Seinni skilgreiningin, kröftugt svart te.

Einkennandi fyrir þennan flokk er sterkur ilmur og og kröftugt grunnbragð.  Laufin á þessum tegundum þurfa ”rými” og mikið vatn, sem maður hellir varlega ofan á laufin.  Þannig fæst mesti ilmurinn og hreinasta bragðið.  Þetta eru t.d. Assam og Ceylon te.

Liturinn á uppáhelltu tei er dökkur eða rauðbrúnn.

 

Darjeeling

Við rætur Himalayafjalla er fremsta teræktunarsvæði heims. Það heitir Darjeeling og te sem er þaðan er jafnan talið með því besta sem völ er á. Besta uppskera Darjeeling “first flush”, er snemma á vorin og yfirleitt komin á markað í maí/júní, en það er dýrasta te sem völ er á. Næst er regnteið “second flush”, sem skorið er upp í ágúst til október. Darjeeling er ljósgullið í bollanum með ilmandi, ljúfu og fersku bragði.   Darjeelingteið má aldrei trekkja of lengi, ef það gerist tapast það ljúfa bragð sem teið gefur og það getur orðið rammt.

Assam

Mesta teræktunarsvæði heims er Assam í norðaustur – Indlandi, en te þaðan er dökkt í bolla og bragðmikið. Í Assam eru ræktunarskilyrðin mjög góð og te þar því hraðvaxið og runnar gróskumiklir. Assam te er einnig notað í ýmiskonar blöndur, þó að það sé fyrirtakste eitt og sér.

Sri Lanka (Ceylon)

Á Sri Lanka, sem áður hét Ceylon, eru helstu teræktunarhéruð Nuwara Elya, Dimbula Kandy og Uva. Te frá Sri Lanka er enn selt undir nafninu Ceylonte. Það er vel þess virði að leita uppi sértegundir, því að hver þeirra hefur margt til síns ágætis.

Kína

Besta svarta teið í Kína er ræktað í Yunnan héraði, og er víða notað sem allra meina bót. Það er t.d. þekkt sem megrunarte, en sé það drukkið fyrir mat sest tanníninnihald þess innan á maga og þarma og minni fita kemst út í líkamann. Keemunte er bragðmikið og dökkt og þekkt fyrir lágt sýrustig. Lapsang Soushong er svart te sem hefur verið reykt við reyk grenigreina og fengið í sig sterkt reyk- eða tjörubragð. Oolong teið er einnig frá Kína, það er hálfgerjað, meðhöndlað eins og svart te, en ekki látið gerjast nema stutta stund. Kínverjar drekka mest af sinni teframleiðsu sjálfir og drekka helst grænt te (gunpowder).

Bragðbætt svart te
Síðari ár hefur tíðkast að bragðbæta te með ýmsum ávaxta- og jurtaolíum. Til eru fjölmörg afbrigði af bragðbættu tei en einna þekktast er Earl Grey te sem kennt er við Grey jarl. Bragðefnið er unnið úr berkinum á Bergamot ávöxtunum, sem er litlir perulaga sítrusávextir, sem vaxa aðallega í Calabria héraðinu á Ítalíu. Þeir vaxa á litlum sígrænum trjám, sem voru ”þróuð” úr perusítrónutré og Seville applesínutré eða grape tré.

 

Fréttabréf Te og Kaffi

Hæg ristun - Slow Roast

Til eru mismunandi aðferðir við að rista baunir. Í stærri verksmiðjum þar sem framleiðslan er gríðarleg og kannski ekki lagt svo mikið upp úr gæðu... nánar

Hvar drekkur þú mest kaffi?