Forsíða > Te > Uppskriftir

Sul de Minas

Brazilía er stærsta kaffiframleiðslu land í heimi. Þar er að finna alskyns afbrigði af kaffi. Brazilíu kaffið er einkum þekkt fyrir lágt sýrustig ... nánar

Sencha Mango

Mjúkt grænt Sencha te frá Japan, ríkulega blandað með sólblómum og mango. Dásamlega sumarlegt! nánar


Um Fair Trade

UTZ

Rainforest Alliance

Skráning á póstlista.



Uppskriftir

Maroccan Mint Tea - Marokkó Myntu Te

Marokkó myntute er alltaf framreitt í sérstökum liltlum glösum. Drykkurinn er framandi, sætur og hressandi. Þegar hella á uppá Marokkó te er best að búa til nokkursskonar þykkni af telaufunum og vel sykrað.

Vesturlandabúa sem smakkar það í fyrsta skipti gæti fundist það of sterkt og og sætt en þá er um að gera að prófa sig aðeins áfram. Marokkó myntute er sefandi og örvandi fyrir meltinguna svo það er sérlega gott eftir góða máltíð.

3 tsk jurtate (myntu).
3 bollar vatn
15 sykurmolar
myntugrein eða fersk myntublöð

Setjið grænt myntute í teketil og hellið soðnu vatni rétt yfir blöðin til að "vekja" þau, hellið vatninu strax af aftur.
Setjið sykurmolana í ketilinn ofaná telaufin og hálffyllið ketilinn með sjóðandi vatni.
Gott er að leggja myntugrein ofaní ketilinn með, ekki nauðsynlegt.
Fjarlægið myntuna og telaufin þegar þau hafa verið látin trekkja í um eina mínútu.
Berið teið fram í litlum glösum, einnig er fallegt að setja eitt, lítið myntublað ofan á hvern drykk til skrauts ef vill.

Tyrknesk teglös fást í Te og Kaffi og kosta þau sem eru hér á myndinni að ofan 540kr stk.
Einnig erum við með mjög smart teglös glær og einlit og kosta þau glær 290,- og einlit 360,-
Hægt er að kaupa þau glös með silfraðri undirskál og teskeið en þá kosta þau glæru 520,- en lituðu 580,-

Tyrkneskur epladrykkur

~ 6 tsk tyrkneskt eplate
~ 4-5 msk Routin vanillusýróp
~ 1/2 grænt epli
~ 1/4 gúrka
~ ísmolar

Eplið og gúrkan eru skorin í litla bita og sett út í tedrykkinn.


Sumarsæla - tedrykkur

~ 4cl Pina Colada te (fæst í Te og Kaffi)
~ 1-2 tsk Routin jarðaberja sýróp (fæst í Te og Kaffi)
~ 6 cl Sprite
~ 4 cl Brazzi - mildur morgunsafi
~ Mulinn ís
~Skemmtilegt að skreyta með t.d. sítrónu - og appelsínusneið.

Þessi er rosalega svalandi !


Ísdrottning - tedrykkur

~ 4 cl Sencha Lemon (grænt te, fæst í Te og kaffi)
~ 1-2 tsk Routin Jarðaberja sýróp (fæst í Te og Kaffi)
~ 4 cl Banana og sítrónudjús
~ 6 cl Sprite
~ Mulinn ís
~ Smart að skreyta með Lime eða sítrónu eða bæði!

Þessi er frábær!


Appelsínudraumur - tedrykkur

~ 6 cl rauðrunna appelsínute (fæst í Te og Kaffi)
~ 2 tsk hindberjasýróp (fæst í Te og Kaffi)
~ 6 cl Appelsínu og greipdjús
~ 6 cl Sprite
~ Mulinn ís
~ Skreytt með appelsínusneiðum

Þessi er algjört æði!

Fréttabréf Te og Kaffi

Hæg ristun - Slow Roast

Til eru mismunandi aðferðir við að rista baunir. Í stærri verksmiðjum þar sem framleiðslan er gríðarleg og kannski ekki lagt svo mikið upp úr gæðu... nánar

Hvar drekkur þú mest kaffi?