Breiðum út boðskapinn:
Te og kaffi vill bjóða þér og þínum að stíga skrefið til fulls, að stíga inn í heim ástríðu og ólíkra menningararfleifða, inn í heim sælkerakaffis.
Hjá Te og kaffi er kaffi framleitt af ástríðu, alúð og umhyggju. Þessi lýsing á við um alla hluta fyrirtækisins jafnt innkaup sem sölu og smásölu sem heildsölu. Það er af þessari ástæðu sem Te og kaffi hefur undir þaki sínu Te og kaffi skólann — skóla þar sem veitt er einstök sýn inn í nýjan heim, þar sem dekrað er við bragðlaukana og þekkingarþorstanum svalað.
Í Te og kaffi skólanum er kennt á vélar, daglegt viðhald þeirra og þrif; þar er fjallað um sögu og uppruna kaffisins; þar fer fram þjálfun og kennsla fyrir núverandi og verðandi kaffibarþjóna; þar eru kennd tefræði og þar eru haldin smökkunarnámskeið, þar sem þú lærir að þekkja muninn á ýmsum kaffitegundum og blöndum, svo fátt eitt sé nefnt.
Það má því með sanni segja að okkur hjá Te og kaffi nægi ekki að vera kaffiframleiðendur, kaffiseljendur og kaffiunnendur. Við viljum líka breiða út boðskapinn því þegar þú hefur einu sinni komist á bragðið þá verður ekki aftur snúið.
Skólastjóri er Halldór Guðmundsson. Ef áhugi er fyrir hendi skaltu senda Halldóri tölvupóst eða hafa hringja í síma 555-1910