Hvernig býr maður til espresso í Bialetti mokkakönnum?
- Hellið köldu vatni upp að öryggisventli. Setjið sigti í og sléttfyllið af fínmöluðu kaffi. Skrúfið saman og setjið á hellu stillta á miðlungshita. Suðan á að koma rólega upp. Munið svo að þvo Bialetti könnuna eftir notkun, þurrka hana og geyma hana ósamsetta.
Hvernig býr maður til espresso í Innova og Francis Francis vélum?
- Í greipina er sett fínmalað kaffi. Fínt er að sléttfylla greipina og þjappa kaffinu með þjöppu. Það eiga að renna 25-30 ml af vatni í bollann á 30 sekúndu. Passið að bollinn, greipin og espressovélin séu heit.
Hvernig freyðir maður mjólk með gufustút?
Setjið mjólk (helst g-mjólk) í stál freyðikönnu upp að spíssi. Setjið freyðistútinn á yfirborðið þannig að þið heyrið mjólkina tísta. Haldið með höndunum undir botn könnunnar. Þegar þið finnið að mjólkin er farin að volgna setjið þá freyðistútinn alveg undir yfirborðið og látið mjólkina snúast/þeytast í könnunni uns kannan er orðin of heit til þess að halda við hana. Þá er mjólkin komin í um 65-70° C. Látið könnuna standa í augnablik og hellið svo rólega yfir kaffið.
Hvernig lagar maður Cappuccino?
Einfaldur espresso er setttur í 130-160 ml. kaffibolla. Freyddri mjólk er helt yfir. Reynið að hella mjólkinni þannig að það komi brúnn hringur yst í bollann. Gott er að strá kakódufti yfir kaffið áður en mjólkinni er helt yfir.
Hvernig lagar maður Caffé latte?
Einfaldur espresso er settur í 200-240 ml. bolla (tebolla). Mjólk er hituð uppí 65-70 gráður. Bollinn er fylltur upp með flóaðri mjólkinni. Hellið rólega yfir kaffið.
Hollráð fyrir kaffiunnendur
1. Espresso vélar: Passið að bollinn, greipin og vélin séu heit.
2. Gott er að setja heitt vatn í bollana til að hita þá fyrir notkun.
3. Ef freyða á mjólk ss. fyrir Cappuccino er betra að nota g-mjólk
4. Þurrkið strax af flóunarstútinum eftir notkun, mjólkin þornar á stútnum fljótt.
5. Ef ekki kemur "kremma" (froða) á kaffið úr espressovélinni getur eftirfarandi verið að: vélin köld, kaffið óþjappað, kaffið of grófmalað, kaffið ekki nýmalað eða þrýstingurinn á vélinni ekki í lagi.