Kaffibrennslan
Kaffi er handunnin framleiðsla og þær tegundir af baunum sem notaðar eru í framleiðslu hjá Te og kaffi hafa farið í gegnum nákvæma rannsókn og verið meðhöndlaðar af umhyggju.
Í kaffibrennslunni okkar erum við vel tækjum búin. Við ristum baunir daglega í blástursofni sem hitaður er með gasi. Í honum ristast baunirnar í heitu lofti en sú aðferð skilar kaffibaunum í hæsta gæðaflokki. Te og kaffi býður eingöngu upp á slíkt kaffi. Ristunin verður jafnari og hægt er að hafa lægra hitastig og þannig er minni hætta á ofristun eða bruna. Við ristunina losnar um náttúrulegar bragðolíur sem gefa kaffinu sitt margbreytilega bragð, bestu kaffitegundirnar hafa tvisvar til þrisvar sinnum meira af náttúrulegum bragðolíum en aðrar kaffitegundir.
Til að smakka kaffið þarf mikla þekkingu og vel þjálfaða bragðlauka. Sérfræðingar hjá Te og kaffi, sem hafa þekkingu á sælkerakaffi og allt að 20 ára reynslu af því, smakka hverja einustu kaffitegund sem við bjóðum upp á áður en innkaup eiga sér stað, fyrir og eftir brennslu og eftir að kaffið hefur verið lagað. Með þessu móti er tryggt að einungis okkar besta vara fari út á markað.