Te & Kaffi er fjölskyldufyrirtæki, stofnað í apríl árið 1984, af Berglindi Guðbrandsdóttur og Sigmundi Dýrfjörð Te & Kaffi varð fyrsta íslenska fyrirtækið til að sérhæfa sig í sölu og framleiðslu á fersku sælkerakaffi (Specialty Coffee) ásamt fersku tei í lausavigt.
Árið 1984 var fyrsta verslun Te & Kaffi opnuð á Barónsstíg 18 með úrval af fersku te og kaffi sem malað var á staðnum. Tveimur árum síðar var verslunin flutt að Laugavegi 24 og jafnframt opnaður espressobar. Þar var hægt að kaupa ýmsa kaffidrykki lagaða úr eðalkaffibaunum, eins og espresso, cappuccino, cafe latte, macchiato og fleiri. Eigin blöndur af te og kaffi voru þá þegar á boðstólum og nutu einnig mikilla vinsælda.