Fyrirtækjaþjónusta Te & Kaffi
Starfsfólk Te & Kaffi hefur ástríðu og metnað til að laga besta kaffi- og tebolla sem hægt er að fá. Þessa ástríðu og metnað er einnig að finna í fyrirtækjaþjónustunni okkar. Te & Kaffi hefur áralanga reynslu af þjónustu við hótel og veitingamarkaðinn með leigu og sölu á kaffivélum, vali á kaffi og öðru hráefni sem þarf til og þjónustu og gæðaeftirlit við tæki og lögun drykkja. Við fylgjum vörunni okkar eftir nánast alla leið ofan í bolla neytenda til að tryggja eins góðan bolla og völ er á.
Sérþekking á öllum tækjum og lögun drykkja
Söluráðgjafar okkar búa yfir sérþekkingu á þeim vélum og búnaði sem þarf til að laga hinn fullkomna bolla. Við framleiðum allt okkar kaffi sjálf í fullkominni kaffibrennslu og flytjum inn aðra hágæðavöru eins og te, súkkulaði, kakó og allt sem til þarf. Við erum einnig með umboð fyrir espressovélar, uppáhellingarvélar og sjálfvirkar kaffivélar frá þekktum framleiðendum eins og Nuova Simonelli, Schaerer,
Með því að versla við fyrirtækjaþjónustu Te & Kaffi færð þú fyrsta flokks hráefni frá íslenskum framleiðanda, úrvals tækjabúnað, reglulegt eftirlit og aðgang að sérþekkingu á vélbúnaði og hráefni.
Hafið endilega samband í síma 555-1910 eða á netfangið gudmundur@teogkaffi.is