Te & Kaffi á og rekur átta kaffihús og sérverslanir. Hjá okkur starfa fjölmargir kaffibarþjónar sem standa vörð um gæði og þekkingu á okkar framleiðslu.
Fyrsta kaffihús fyrirtækisins var stofnað árið 1986 í bakhúsi á Laugavegi 24 og þar var þriðja espressovélin sem flutt var til landsins. Frá upphafi höfum við lagt gríðarlega mikla áherslu á gæði og fjölbreytileika og í dag starfar hjá okkur fjöldinn allur af framúrskarandi kaffibarþjónum sem elska að laga kaffi og gera það með stæl.
Á kaffihúsum okkar er hægt að fá sér mikið úrval af kaffi- og tedrykkjum ásamt mjög góðum og ferskum samlokum, vefjum, beyglum, salati og súpum. Svo er auðvitað mikið úrval af múffum, klöttum, tertum og fleira góðgæti sem lagað er í og sent úr eldhúsi fyrirtækisins alla daga.
Sérverslanir Te & Kaffi eru fullar af alls kyns góðgæti; kaffi og tei í lausavigt, súkkulaði, konfekti, kaffikönnum og fleiri hlutum til kaffi og telögunar.