Eymundsson Hafnarstræti 91-93
Frábærlega staðsett kaffihús í hjarta Akureyrar.
Kaffihúsið er við annan enda göngugötunnar í bókabúð Eymundsson. Stórt kaffihús sem býður uppá gómsætar samlokur, salat og súpur, ásamt miklu úrvali af klöttum, múffum, tertum og fleira. Einnig er hægt að fá sér kaffi malað á staðnum, te og aðra sælkeravöru ásamt kaffikönnum og tekötlum.
Tilvalið að ganga frá Ráðhústorginu, kíkja í búðaglugga og setjast svo niður með heitan drykk og fylgjast með mannlífinu út um gluggann.
akureyri@teogkaffi.is - Sími: 660 7935
Opnunartímar
Virka daga 10:00 – 22:00
Helgar 12:00 – 22:00