Eymundsson Austurstræti 18

Frábært kaffihús í einni stærstu bókaverslun landsins, Eymundsson.

Kaffihús með endalaust úrval af góðu og fersku meðlæti sem lagað er á hverjum degi í eldhúsi fyrirtækisins. Ásamt öllum þeim te- og kaffidrykkjum sem hugurinn girnist. Hægt er að sitja út um alla búð á þremur hæðum og lesa bækur, tímarit eða fara á netið.

Tilvalinn staður til að hitta vini, koma með fjölskylduna eða halda fundi og fá sér frábæra kaffidrykki lagaða af bestu kaffibarþjónum landsins. Einnig er stór, skjólríkur og flottur sólpallur þar sem notalegt er að sitja úti á sumrin.

austurstraeti@teogkaffi.is - Sími: 660 7934

Opnunartímar

Virka daga 9:00 – 22:00
Helgar 10:00 – 22:00