Lækjartorgi

Frábært kaffihús í Kvosinni með útisvæði fyrir 40 manns á einu flottasta torgi Reykjavíkur. Kaffihúsið er skreytt gömlum Reykjavíkurmyndum sem er skírskotun til staðsetningar kaffihússins á þessum sögufræga stað í borginni.

Í boði er allt það besta í vöruvali Te & Kaffi og staðurinn skartar einstakri kaffivél sem var sérsmíðuð fyrir heimsmeistaramót kaffibarþjóna í Kólumbíu 2011.

Lengsti opnunartími af öllum kaffihúsum Te&Kaffi og tilvalinn staður til morgunverðar fyrir vinnudag í miðborginni.

laekjartorg@teogkaffi.is - Sími: 864 4620

Opnunartímar

Virka daga 8:00 – 18:00
Helgar 9:00 – 18:00