Laugavegi 27

Stærsta verslun Te & kaffi staðsett í hjarta borgarinnar.

Verslunarrekstur Te & Kaffi við Laugaveginn nær allt aftur til ársins 1987 þegar við opnuðum kaffihús og sérverslun í bakhúsi við Laugaveg 24. Í dag rekum við verslun við Laugaveg 27 sem var opnuð 1997.

Frá þeim tíma hefur búðin þróast mikið og fór hún í miklar endurbætur árið 2006. Frábær staður til að skoða allt það helsta sem te og kaffiheimurinn hefur upp á að bjóða ásamt því að smakka á úrvals te- og kaffidrykkjum. Mikið úrval af kaffi, tei og gjafavöru. Úrval af meðlæti og nóg pláss til að setjast niður og njóta, horfa á mannlífið fyrir utan gluggann og fá sér góðan kaffibolla.

Þarna finna allir sælkerar eitthvað fyrir sig.

laugavegur@teogkaffi.is - Sími: 552 6260

Opnunartímar

Virka daga 8:00 – 18:00
Laugardaga 10:00 – 17:00