Samfélagsleg ábyrgð
Það má með ýmsum hætti láta gott af sér leiða. Te & Kaffi hefur valið sér ýmsar leiðir til þess og það má skipta þessum samfélagslegu verkefnum upp í tvo flokka. Annars vegar með kaupum á sjálfbæru kaffi og hinsvegar með samstarfi við Barnahjálp Sameinuðu Þjóðanna; Unicef.
Sjálfbært kaffi
Hægt er að fara margar leiðir með það að sjónarmiði að láta gott af sér leiða um leið og verslað er kaffi á heimsmarkaði. Te & Kaffi hefur ávallt haft það að leiðarljósi hvort heldur fyrirtækið verslar beint frá bónda eða verslar kaffi frá bændum sem tengjast samtökum sem hjálpa þeim að auka gæði framleiðslu sinnar og gera betur við starfsmenn og umhverfi þeirra, sem þeir annars gætu ekki eða ættu erfiðara með sem einyrkjar. Sjálfbært kaffi gefur ræktendum aukið gildi umfram annað kaffi. Hvort sem það er Fairtrade, Utz certified eða Rainforest Alliance. Þetta kaffi tryggir ræktendum sem hafa fjárfest í menntun, félagslegri uppbyggingu, efnahagslegri sjálfbærni og náttúruvernd hærri greiðslur. Þessi sjálfbærni skapar öllum þeim sem koma að kaffiræktuninni betri lífsskilyrði.
Fairtrade
Te & Kaffi er eina framleiðslufyrirtækið á Íslandi sem hefur leyfi til að framleiða Fairtrade vottað kaffi. Það fæst í öllum verslunum og kaffihúsum okkar. Fairtrade stendur fyrir sanngjörn viðskipti. Markmiðið er sjálfbærni fátækra kaffibænda í þróunarlöndum, sem geta ekki verslað beint með sína vöru og geta því ekki samið um sanngjarnt kaupverð. Fairtrade gerir þeim kleift að lifa af ræktuninni án þess að verða háðir erlendri hjálparstarfsemi. Með Fairtrade merkingu á vörum er verið að senda skýr skilaboð þess efnis að varan sé framleidd á ásættanlegan hátt og þær manneskjur sem framleiða vöruna hafi viðunandi lífskjör. Við erum stolt af því að styðja við þetta málefni.
Utz Certified
Utz þýðir gott að innan á tungumáli Maya. Utz er alþjóðlegt verkefni sem snýst um að að votta aðila sem eru tengdir ábyrgri kaffiframleiðslu, sem ræktendur, framleiðendur og aðra. Utz er svar við þeim vaxandi áhuga neytenda að vita meira um uppruna þess kaffis sem þeir drekka. Löggjöf varðandi matvæli í Evrópu og Japan er líka að þróast í átt að meira gagnsæi varðandi uppruna og rekjanleika hinnar endanlegu vöru. UTZ CERTIFIED veitir fullvissu um ábyrga kaffiframleiðslu og upprunavottorð sem neytendur eru farnir að krefjast. Ennfremur svarar verkefnið tveimur mikilvægum spurningum fyrir alþjóðalegar kaffikeðjur; hvaðan kemur kaffið? Hvernig var það framleitt? Þeir ræktendur sem hafa vottun Utz fara eftir þessum siðferðilegu reglum. Óháðir skoðunaraðilar sinna árlegu eftirliti til að tryggja að farið sé eftir settum reglum.
Rainforest Alliance
Rainforest Alliance verkefnið snýst um umhverfisvernd á ræktunarsvæðum. Sem þýðir meðal annars að villtir fuglar og önnur dýr eru látin óáreitt, regnskógar verndaðir, vatnsuppsprettum er haldið hreinum og ómenguðum og komið er fram við verkafólk af virðingu og sanngirni. Einnig lúta markmiðin að framleiðslu á háu gæðastigi, notkun á tækni til að halda við framleiðslustigi og bæta umhverfið, fræða kaupendur og neytendur um kosti þess að kaupa kaffi sem tekur þátt í samfélagslegum og vistvænum verkefnum og bæta lífsskilyrði fólks á ræktunarsvæðum.
Unicef
Te og Kaffi hafa verið í samstarfi við UNICEF á Íslandi frá haustinu 2008 um sölu á kaffi til fyrirtækja þar sem hluti af söluandvirði vörunnar rennur til UNICEF. Verkefnið fer fram reglulega og er notað kaffi sem er innan Utz Certified vottunar. Einnig hafa kaffihús Te & Kaffi boðið viðskiptavinum sínum að styrkja starf UNICEF með sölu sérstakra styrktarspjalda þar sem allur ágóði rennur til UNICEF. Fyrir örfáar krónur má gera stóra hluti á vegum Unicef.