Eldhúsið
Eldhúsið okkar er skipað metnaðarfullum kjarnakonum sem elda af ástríðu og fagmennsku. Þær hafa mikla þekkingu á hráefninu sem endurspeglast í vel útilátnu, næringarríku og gómsætu meðlæti til að fullkomna heimsókn viðskiptavina okkar á kaffihúsin. Salat, pasta, samlokur, beyglur, panini og croissant er meðal þess sem við bjóðum uppá en einnig erum við með heimalagaðar, matarmiklar súpur sem hafa notið mikilla vinsælda. Samlokurnar okkar eru úr hollu og grófu brauði og leitumst við eftir því að hafa þær öðruvísi en hefðbundnar samlokur sem fást annarstaðar. Allt sem við sendum frá okkur er í 100% endurvinnanlegum, umhverfisvænum umbúðum. Við leggjum mikið uppúr gæðum í öllu því sem við sendum frá okkur og á það alveg eins við það sem kemur úr eldhúsinu og það sem kemur úr kaffiframleiðslunni okkar.
Kíktu við í einhverju af kaffihúsum okkar og smakkaðu á góðgætinu!