Kaffibrennslan
Við notum eingöngu besta mögulega hráefni sem hægt er að fá á markaðnum. Við vöndum valið við innkaup og smökkum hverja einustu prufu sem við fáum, áður en við kaupum tegundir inn. Te & Kaffi er með fjöldann allan af vel þjálfuðum kaffi sérfræðingum sem ákveða þær tegundir sem keyptar eru inn hverju sinni.
Í kaffibrennslunni okkar erum við vel tækjum búin og ristum baunir daglega í fullkomnustu gerð blástursofns sem hitaður er með gasi. Í honum ristast baunirnar í heitu lofti en sú aðferð skilar kaffibaunum í hæsta gæðaflokki. Ristunin verður jafnari og hægt er að hafa lægra hitastig og þannig er minni hætta á ofristun eða bruna, þessi aðferð er kölluð "Slow roast" eða "hæg ristun" og er notuð um allan heim í kaffibrennslum sem leggja mikla áhærslu á gæði. Við hæg ristunina losnar um náttúrulegar bragðolíur á bestan hátt sem gefa kaffinu sitt margbreytilega bragð, bestu kaffitegundirnar hafa svo jafnvel tvisvar til þrisvar sinnum meira af náttúrulegum bragðolíum en aðrar kaffitegundir. Tölvubúnaður og skynjari blástursofnsins hjálpar okkar brennslumeisturum að halda ristun baunarinnar stöðugri í hvert sinn. Þannig getum við ábyrgst að kalla fram besta bragð hverrar baunar.
Annar mikilvægur hluti framleiðslu er pökkun á kaffinu. Þegar kaffið kemur nýristað úr ofninum skiptir miklu máli að viðhalda ferskleika kaffisins með pökkun. Pökkunarvélarnar okkar eru hraðskreiðar, nákvæmar og auðveldar í meðhöndlun sem gerir okkur kleyft að pakka kaffinu strax eftir ristun. Helsti óvinur kaffis er súrefni og þess vegna skiptir höfuðmáli að passa að það komist ekki í snertingu við kaffið nema í sem allra minnsta mæli. Einstreymisventill á umbúðum gerir það að verkum að kaffið getur andað frá sér, en ekkert loft kemst til baka inn í pakkann og það margfaldar geymslutímann og heldur kaffinu fersku.
Við hugsum mikið um umhverfisvernd og tökum virkan þátt í endurvinnslu og reynum af fremsta megni að lágmarka allan úrgang. Kaffibrennarinn er útbúinn með svokölluðum eftirbrennara sem brennir rykið sem myndast við kaffiristun og eyðir öllu efni og lykt sem er mjög umhverfisvænt. Kaffibrennsla Te & Kaffi skilar því engri mengun út í andrúmsloftið og leggjum því þannig okkar að mörkum til umhverfisverndar.
Til að smakka kaffið þarf mikla þekkingu og vel þjálfaða bragðlauka. Sérfræðingar okkar hafa þekkingu á sælkerakaffi og áratuga reynslu á því sviði. Hver einasta kaffitegund er smökkuð áður en innkaup eiga sér stað og einnig fyrir og eftir hverja brennslu. Með þessu móti er tryggt að einungis besta hugsanlega varan fari á markað. Kaffi er ferskvara og því nýrra sem það er því betra er það. Gott hráefni, vandaðar vinnsluaðferðir og nálægð við markaðinn tryggja að við erum í kjörstöðu til að koma vandaðri og ferskri vöru á markað – Og það gerum við daglega!