Starfsumsóknir

Hjá Te & Kaffi starfar úrvalshópur sem hefur gildi fyrirtækisins að leiðarljósi; fagmennsku, þekkingu og upplifun. Allir sem hafa áhuga á að vera hluti af sterkri liðsheild fyrirtækisins eru hvattir til þess að sækja um.

Við erum með margar starfsstöðvar í fyrirtækinu; framleiðslu, lager, kaffihús, útkeyrslu o.fl. og erum reglulega að leita að öflugu starfsfólki sem er drífandi og áhugasamt um kaffi, te og aðrar vörur. Starfsmenn  fá starfsþjálfun og skemmtilega kennslu í öllu sem viðkemur sínu starfsviði og þeir sem hefja störf á kaffihúsunum fá góða og vandaða kaffibarþjónakennslu.

Sendið umsóknir á netfangið teogkaffi@teogkaffi.is ásamt ferilskrá.
Vel útfyllt umsókn getur skipt sköpum fyrir umsækjendur.